Síða 1 af 1
Jeppakaðall
Posted: 12.mar 2010, 08:17
frá freyr44
Hvar fæ ég góðan jeppakaðal í jeppann á hagstæðu verði.
Kv.Hilmar
Re: Jeppakaðall
Posted: 12.mar 2010, 08:32
frá dabbi
http://ja.is/kort/#q=index_id%3A1248544 ... 399387&z=9Ísfell
lætur þá splæsa fyrir þig var mjög gott verð hjá þeim einusinni, ég keypti hjá þeim kaðal með 16.8t slitþol
mbk
Dabbi
Re: Jeppakaðall
Posted: 12.mar 2010, 08:45
frá freyr44
Takk fyrir svarið.
Ég ætla að kikja til þeirra og sjá úrvalið.
Re: Jeppakaðall
Posted: 12.mar 2010, 09:06
frá freyr44
Gleymdi að spyrja að einu.
Hvað eru menn að taka langan spotta?
Kv.Hilmar
Re: Jeppakaðall
Posted: 12.mar 2010, 09:49
frá dabbi
ég tók 15 metra
oft myndi ég vilja hafa 25 metra og svo styttri 10 metra
hef stundum sett saman 2, 15 metra með D lás á milli
Re: Jeppakaðall
Posted: 13.mar 2010, 12:41
frá Ingaling
Mæli ekki með neinu járndóti í jeppakaðli. Ef menn eru að kippa með teygjuspotta og hann slitnar þá hlýst nægur skaði þegar spottin beiglar bílana óþarfi að setja lóð með...
Re: Jeppakaðall
Posted: 13.mar 2010, 13:27
frá Stebbi
Já og ekki gleyma því að menn hafa misst höfuðið við notkun á óstimpluðum lásum. Það gerðist síðast í USA fyrir 3 árum.
Hafa menn eitthvað prufað að flytja sér inn svona Snatch-Strap eins og Ástralinn notar, einskonar stroffur með 20% teygju og saumuðu auga báðu megin. Maður hefur verið að sjá þetta á 50-100 dollara á netinu.
http://www.triplediamond.asn.au/articles/snatchstraps.pdf