Síða 1 af 1
Braggatjald / Hústjald
Posted: 30.maí 2011, 03:06
frá gudlaugur
Sælir. Mig vantar alveg rosalega eitthvað almennilegt stórt tjald sem rúmar 5manna fjöldskyldu vel og þannig að það sé hægt að hafa borð og stóla inni ef þannig veður er. Eina sem ég hef fundið á netinu er rándýr tjöld sem eru að slefa í 80þús ! Var að velta fyrir mér ef einhver á notað tjald eða veit um stað / staði sem selja svona tjöld en eru kannski ekki með heimasíðu.
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 30.maí 2011, 09:33
frá Svenni30
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 30.maí 2011, 23:57
frá gudlaugur
*Þráður hefur verið fjarlægður*
Ég var einmitt búinn að þræða bland.is og allar helstu verslanir sem ég vissi um að seldu tjöld :)
Ég þakka þér samt sem áður fyrir viljan að aðstoða ;)
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 31.maí 2011, 09:29
frá Svenni30
Ekkert mál. Þetta er þá selt. Var mjög flott Braggatjald nýlegt á 30-35 kall.
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 31.maí 2011, 12:48
frá haffij
Held að þetta hafi nú verið notað tjald úr Rúmfatalagernum. Nýtt tjald þar er á sama verði.
http://www.rumfatalagerinn.is/rl/vefver ... _id=107446Ef þú ert að leita þér að ódýru tjaldi þá væri kannski ráð fyrir þig að kíkja þangað, en ég myndi ekki búast við svipuðum gæðum og ef þú kaupir þér tjald í útivistarbúðunum.
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 31.maí 2011, 22:17
frá Kalli
Tjald Mont Blanc, 6 manna
Stórt og gott fjölskyldutjald sem rúmar 6 manns. Þrjú tveggja manna herbergi og stórt fortjald í miðjunni. Frábært verð!
Meira
verð: 34990.-
Tjald ALPS 6 manna
Nett og gott tjald með tveimur aðskildum svefnhólfum og góður alrými á milli. Ágætt fortjald.
Meira
verð: 19990.-
http://www.rumfatalagerinn.is/rl/vefverslun/?product_category_id=107446
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 31.maí 2011, 22:19
frá Kalli
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 31.maí 2011, 23:52
frá gudlaugur
Þakka fyrir þessa pósta kalli :)
Ég er búinn að skoða þetta einnig. En þetta hentar mér ekki alveg nógu vel. Mér vantar að geta haft borð og stóla einnig inni. Er með lítil börn ;) Það sem hentar mér fæst í útivistarbúðum og er á 60þús+ Ekki alveg með budget fyrir því eins og stendur. Ég keypti eit helv gott tjald fyrir 2 árum, ekta hústjald gamalt en gott,,, nema hvað að ég tjaldaði því daginn sem ég keypti það og lét það standa úti í 2daga og á degi 2 kom þvílikt vont veður.. við erum að tala um 18metra + Og það fór í ruslið eftir þá nótt :( annars ætti ég það ennþá ;) Er að vona eftir að finna annað slíkt tjald :)
Re: Braggatjald / Hústjald
Posted: 01.jún 2011, 17:12
frá bragi
Farðu bara á
cabelas.com og finndu alvöru tjald þar. Ætti ekki að vera dýrara en hér heima.