Síða 1 af 1

Blautur Pajero.

Posted: 29.mar 2011, 20:15
frá MattiH
Sælir.

Er hér einhver sem kannast við blautt gólf í Pajero ?
Málið er að bæði bílstjóra og farþegamegin frammí er gólfteppið mjög blautt.
Ég er búin að þurrka hann og er að útiloka topplúgu og framrúðu. Það er ekkert ryð í gólfi eða neinstaðar.

Er einhver sem hefur lent í svipuðu með Pajero ? (btw 98árg)
Datt kannski í hug miðstöðin ?

Re: Blautur Pajero.

Posted: 29.mar 2011, 21:06
frá KÁRIMAGG
Gæti verið miðstöðvarelement að leka
Sætin blotna ef það er topplúgan
Settu puttann í bleytuna frostlögur er beisk sætur á bragðið

Re: Blautur Pajero.

Posted: 29.mar 2011, 22:23
frá khs
Ég á 2003 model sem lak eftir að affallið fyrir vatnið frá rúðu stíflaðist vegna laufblaða.

Re: Blautur Pajero.

Posted: 30.mar 2011, 00:13
frá Freyr
KÁRIMAGG wrote:Gæti verið miðstöðvarelement að leka
Sætin blotna ef það er topplúgan
Settu puttann í bleytuna frostlögur er beisk sætur á bragðið


Ekki útiloka topp lúguna þótt sætin séu þurr, leki með lúgu leitar oft eftir toppklæðningunni og þaðan niður með gluggapóstum.

Freyr