Síða 1 af 1

Ryðvörn ?

Posted: 20.mar 2011, 13:06
frá Stjáni Blái
Hafa menn einhverja reynslu af því að láta ryðverja grind/undirvagn í sínum jeppum ?
Eru menn að gera þetta sjálfir því þeim þykir þetta ekki nógu vel gert á verkstæðum ?
Hvaða efni eru menn að nota i svona aðgerð ?

Kv.
Stjáni..

Re: Ryðvörn ?

Posted: 20.mar 2011, 16:07
frá jeepson
Ég er að fara í þessa aðgerð í sumar. Og ætla bara að nota olíu í þetta. jafnvel hita upp koppafeiti. Einnig ætla ég að setja koppafeiti í botninn í bílnum hjá mér og setja plast yfir og svo gólf teppið. olía og koppafeiti er ódýrasta ryðvörnin, En krefst þess að menn nenni jafnvel að vera að dunda í þessu sjálfir. Það þarf jafnvel að gera þett einusinni á ári. En það var einhver þráður um akkúrat þessa ryðvarnar umræðu Kanski ekki vitlaust að endur vekja hann :) Menn hafa auðvitað misjafna skoðun á þessu eins og öllu öðru.

Re: Ryðvörn ?

Posted: 20.mar 2011, 18:33
frá tommi3520
rhino linings er eitthvað sem ég hef verið að skoða, það er verkstæði í hfj sem sprautar þessu á en þetta er gúmmíkent efni sem höndlar mj0g vel grjótkast og þess háttar, ef það kemur oflugt sár í rhino himnuna er það bara einangrað en leyfir ekki vatni og oðru að komast undir allt efnið. Það kostar sitt að láta sprauta þessu á, ég held að artic trucks séu með svona líka til sölu sem maður ber á sjálfur, en mér skilst að þetta sé frekar dýrt allt saman.

http://www.plastver.is/hafdu.php held að þetta séu þeir sem sprauta þessu á

TB

Re: Ryðvörn ?

Posted: 20.mar 2011, 18:44
frá Einar
Fornbílaáhugafólki er umhugað um að gullmolarnir þeirra skemmist ekki, hjá þeim eru þræðir um þessi mál:
http://jsl210.com/spjall/viewtopic.php?t=3485
http://jsl210.com/spjall/viewtopic.php?t=3570
Örugglega fleiri ef menn leita