Síða 1 af 1

..

Posted: 15.mar 2011, 20:39
frá HaffiTopp
..

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 15.mar 2011, 20:50
frá gaz69m
ertu búin að athuga hvað benni selur þetta á

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 15.mar 2011, 22:07
frá Kalli
breytir.is veit að þeir eru með OME Gorma og dempara.

Jeppaþjónustan Breytir ehf. Stórhöfða 35, 110 Reykjavík Sími: 567 7722

Kv. Kalli.

..

Posted: 15.mar 2011, 22:56
frá HaffiTopp
..

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 16.mar 2011, 08:33
frá ingolfurkolb
Ég pantaði gorma af þessari síðu og það gekk allt vel. Það tók einhverjar 2-3 vikur þó af því að þeir áttu þá ekki á lager. Það kostaði $120 sendingarkostnaðurinn og hefði verið $170 með hraðpósti að senda 4 gorma.

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 16.mar 2011, 09:04
frá HaffiTopp
..

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 16.mar 2011, 14:19
frá ingolfurkolb
Já þú skráir sendingar stað ofl. þegar þú klárar pöntunina og borgar. Ég pantaði þetta síðastliðinn nóveber. Þú gerir þér svo grein fyrir því að tollur og skattur leggst ofan á þetta hérna heima. Held að upphæðin tvöfaldist oft. Þá yrði þetta 500+5+170= $675 Og svo 675*116*2= 156.600 kr. Þetta er þó væntanlega algjört hámark. Aðrir vita væntanlega meira um tolla og gjöld heldur en ég.

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 17.mar 2011, 19:09
frá HaffiTopp
..

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 17.mar 2011, 19:13
frá Kiddi
Tollurinn reiknast bara á innkaupsverð reiknað yfir í íslenskar krónur miðað við tollgengið þann daginn. 15% tollur er algengur en þú getur fengið nánari upplýsingar um það hjá tollinum (tollur.is). Þar getur þú séð tollskrána nú eða sent þeim fyrirspurn. Síðan kemur alltaf virðisaukaskattur og pósturinn rukkar gjarnan fyrir tollskýrslugerð. Man ekki nákvæmlega hvað það kostar en það var allavega þúsundkall.

Re: Að panta sjálfur frá OME

Posted: 17.mar 2011, 19:50
frá danfox
HaffiTopp wrote:Heldurðu virkilega að skatturinn og tollurinn reiknist á þetta í dölum (dollurum)?
En ég hef verið að spá í að setja færslu fyrir balancestöngina á afturhásingunni til að mæta hækkuninni á föðrun og svo að engin þvingun verði á draslinu. Setja um 2,5-3 cm kubba undir fóðringuna þar sem hún kemur á hásinguna í balancestönginni(miðast við að gormarnir gefa 5 cm hækkun) og lengja svo í tengistönginni. En veit einhver hvar ég gæti fengið einhverskonar polyurathen-plastkubba í þessari þykkt sem auðvelt yrði að bora göt á og nota í þetta? Hafa ekki renniverkstæði verið með svona til sölu?
Kv. Haffi



Þú færð plast efni hjá Málmtækni á höfðanum.

Mbk Siggi M