Síða 1 af 1

Hilux 2.5

Posted: 26.nóv 2024, 18:30
frá Elli m
Sælir meistarar.
Er í smá veseni með 2.5 hilux. Hann á það til að drepa á sér 2-3svar sinnum þegar hann er ný settur í gang í frosti, hvað gæti verið að hrjá þennan gæðing?

Re: Hilux 2.5

Posted: 27.nóv 2024, 08:20
frá jongud
Gæti verið vandamál með svokallað "afterglow" á glóðarkertunum. Þau eiga held ég að hita í nokkrar sekúndur eftir að mótorinn fer í gang.

Re: Hilux 2.5

Posted: 27.nóv 2024, 13:07
frá Elli m
Takk fyrir. Skoða það

Re: Hilux 2.5

Posted: 04.des 2024, 09:36
frá villi58
Er hann að hökta áður en hann drepur á sér, gæti verið glóðarkerti eins og Jón segir. Hafa alltaf nýja olísíu áður en byrjar að frysta, svo er loft stundum til vandræða með slöngu frá síu að olíuverki og dregur loft með handpumpu. Svo margar aðrar ástæður, prufa sig áfram.

Re: Hilux 2.5

Posted: 07.des 2024, 16:18
frá Elli m
Hann er með nýja síu og höktir ekkert, bara dauður allt í einu en ríkur í gang í fyrsta aftur.
En takk fyrir ábendingar skoða þetta nánar

Re: Hilux 2.5

Posted: 08.des 2024, 08:14
frá villi58
Kanski loft eða rafmagnsvesen. Ath. leiðslu á segulloka olíuverki.