Sælir,
Það var að detta inná borð hjá mér 4th gen Pajero(NW), og langaði aðeins að forvitnast hvernig menn hafa verið að koma 34-35"(315/70/17 eða 265/85/17) annarsvegar og 38+ hinsvegar undir þá.  Á eldri Pæjunum þá veit ég að menn hafi verið að færa afturhásinguna og hliðra bensín tanknum eitthvað til.  
4th gen-inn er hinsvegar sjálfstætt fjaðrandi að aftan,þannig að er kanski eina málið að fara í eitthvað eins og dobinsons 2"+ með nýjum UCA/stangarendum og síðan bara sawzall-inn eins og pláss leyfir? og eru einhverjir hérlendis með 35 eða 38 kannta á þetta boddy? 
og að öðru, nú var ég síðast í þessu jeppabrasi fyrir einum 9 árum síðan og er fluttur suður yfir heiðar síðan þá, eru einhverjir virkir hópar sem eru að fara í ferðir reglulega? ég veit af útivist og 4x4. reikna með að ég verði rólegur í vetur meðan ég er bara á stock 265/70/17
			
									
									Gen 4 Pæju pælingar.
- 
				
jongud
 - Innlegg: 2716
 - Skráður: 29.mar 2012, 08:39
 - Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
 - Bíltegund: Toyota Tacoma
 
Re: Gen 4 Pæju pælingar.
Litlanefndin er alltaf virk hjá Ferðaklúbbnum 4X4, hún verður á staðnum í Síðumúla 31, Reykjavík í kvöld á opnu húsi. Allir velkomnir og heitt á könnunni. Það getur vel verið að einhver á breyttum 4.gen Pejero verði á staðnum líka.
			
									
										
						Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur