Síða 1 af 1

Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 28.feb 2011, 01:35
frá Hfsd037
til þess að búa til drullusokka úr?

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 28.feb 2011, 08:39
frá Þorri
Ég veit að fossberg er að selja gúmmí allavega til að nota í pakkningar það sakar ekki að spurja þá hvort þeir eiga eitthvað sem hentar í þetta.
Kv Þorri

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 28.feb 2011, 09:21
frá Breki
Ég keypti mér hjá ET versluninni og eru það samskonar drullusokkar og í vörubílunum, þykkir og sterkir og kostuðu ekki mikið.

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 28.feb 2011, 09:33
frá Stebbi
Stál og Stansar eru líka með drullusokka á jeppa, fást extra breiðir og háir.

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 28.feb 2011, 10:58
frá AgnarBen
Stebbi wrote:Stál og Stansar eru líka með drullusokka á jeppa, fást extra breiðir og háir.


4 stk kosta 14-15 þús kr hjá Stál og Stönsum, enn dýrari hjá Bílabúð Benna ..... Skil ekki verðið á þessu !

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 28.feb 2011, 18:43
frá Stebbi
Kræst hvað þetta hefur hækkað.

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 28.feb 2011, 21:37
frá gaz69m
en að sníða drullusokka úr færibanda gúmmíi

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 01.mar 2011, 19:28
frá Sævar Örn
Það gerði ég og fékk nóg efni í sirka 20 drullusokka fyrir 8000 kall í poulsen fyrir löngu síðan :)

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 01.mar 2011, 20:01
frá MattiH
Poulsen eru með allskonar gúmmí í þetta.
www.poulsen.is

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 02.mar 2011, 04:06
frá Hfsd037
MattiH wrote:Poulsen eru með allskonar gúmmí í þetta.
http://www.poulsen.is


1 kg af gúmmíi hjá poulsen kostar um 5 þús kall, hvað er einn drullusokkur fyrir 38" bíl þungur?
en annars leit ég við hjá ET í vatnagörðum og fann þar nógu síða drullusokka, 1 stk aftur sokkur kostar um 2300 kr en 1 stk fremri sokkur kostar um 1600 kr sem er ansi fínt verð mundi ég halda

vitið þið hvað AT sokkarnir kosta?

Re: Hvar er best að kaupa gúmmímottur..

Posted: 11.mar 2011, 02:35
frá Billi
Gúmmísteypa Þ. Lárussonar Gylfaflöt 3

Keypti þar drullusokka að aftan hjá mér fyrir um 4000 kr. minnir mig í sumar. Þykkir og góðir gúmmí sokkar enginn strigi í þeim.