nýgræðlingur


Höfundur þráðar
Dabbsterinn
Innlegg: 1
Skráður: 09.apr 2023, 22:35
Fullt nafn: Daði Jóhannesson
Bíltegund: Pajero

nýgræðlingur

Postfrá Dabbsterinn » 09.apr 2023, 22:54

góðann dag öllsömul, nú á fimmtudaginn hefjast mín jeppaævintýri, ég tel ekki 4runner viðgerðina með þar sem ákveðinn snillingur maukaði drifið áður en ég fékk tækifæri á því að komast af malbikinu á honum.
Eins og stendur þá er ég að fara að eigna mér óbreyttann 2001 Pajero með 3.5 l bensínvél og væri endilega til í ykkar álit á verkefnalistinanum mínum, ég er ekki að stefna á neinar jöklaferðir eða svoleiðis stórgrýti, vill bara komast þægilega inn á Skagaheiði, Arnarvatnsheiði, Veiðivötn og helst yfir Sprengisand og að Kvíslárvatni einhvern daginn, jú og í gegnum snjóþyngslin hérna í Kinn þegar konungur vetur hlær sem mest.
minn verkefnalisti er svona

-35 tommu dekk
-svefnaðstaða, kippi öllum aftursætunum úr og reyni að troða dýnu inn
-talstöð?
-spottakassi fyrir vinina sem festa sig
-stálhlífar undir gírkassann, bensíntankinn og allt hitt
-tröppur svo litli ég get farið upp í hann án þess að togna
-snorkel
-led bar og kastara

er ég að gleyma einhverju sem þarf helst í svona ferðir? þetta er alls ekki það eina sem ég ætla mér að gera fyrir þennan bíl en þetta er það fyrsta sem ég ætla að klára, nenni ekki að pæla í einhverjum uppfærslum með dauðann bíl hálfa leið inn að Ölversvatni



User avatar

muggur
Innlegg: 354
Skráður: 12.okt 2011, 15:16
Fullt nafn: Guðmundur Þórðarson

Re: nýgræðlingur

Postfrá muggur » 10.apr 2023, 08:35

Hljómar vel.
Myndi skoða hjólastillinguna að aftan vel en hjámiðjuboltar í afturklöfunum ryðga oft fastir og þá er mikið mál að hjólastilla. Ef þetta er GDI bíll þá myndi ég tékka á micro-síunum fyrir bensínið en þær eiga það til að stíflast.
Góðar ferðir!!!
----------------------------------------------
Guðm. Þ.
Pajero 1998 V6 3000 24V

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: nýgræðlingur

Postfrá jongud » 10.apr 2023, 09:09

35 tommu dekk?
Hljómar vel, ekki vandamál fyrir drifbúnaðinn á þessum bíl.
Um að gera að vera með nógu breiða brettakannta svo hann sé ekki að sóða sig.
Stigbretti með auka þrepi niður er fínt að hafa ef það er hátt upp í bíl.
Mér hefur fundist sem snorkel sé alltaf svolítið 'overkill' en það er kannski bara ég. Það getur líka bjargað loftsíunni frá stíflu í þéttum lágarenningi.
Talstöð? Um að gera. Passa bara að vanda uppsetninguna á henni og sérstaklega loftnetinu!
Og EKKI kaupa "kínastöð". Notuð taxastöð frá bretlandi eru alltaf betri kaup, minna vesen, meiri drægni og að auki er hún lögleg.

Mæli með þessum seljanda og stöðvum
https://www.ebay.com/itm/165480574901


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 21 gestur