Síða 1 af 1

Blessaður Patrolinn

Posted: 14.mar 2023, 15:13
frá Ferginn
Sælir félagar - nú brotnaði plaststúturinn fyrir yfirfallsboxið á vatnskassanum - er einhver möguleiki á að skrúfa eitthvað ,,fittings" rör eða stubb þar á - þekkja menn eitthvað slíkt?

Re: Blessaður Patrolinn

Posted: 18.mar 2023, 18:31
frá grimur
Spurning hvort það er pláss til að snitta fyrir nippli og setja hann í með epoxy eins og JB Weld. Gengjuþétti eitt og sér er ekki líklegt til að halda og ekki JB Weld heldur, en samanlagt er það kannski séns. Hef alveg reddað allskyns svona veseni með epoxy en það er ekki vænlegt að reiða sig á bindinguna í því eina og sér.