Síða 1 af 1

Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 21.feb 2022, 22:07
frá einsik
Sælir herramenn.

Ég var e-ð að þvælast á youtubeinu og rakst á kanadískan snilling sem er að kynna biltingarkenndan úrhleypibúnað fyrir öll dekk í einu.
Loftdælan undir sæti og 2 tengi undir hvoru framsæti.
Er enginn hér sem á vídeó af sínum úrhleypibúnaði sem getur sýnt honum hvernig á að gera þetta?
Ég er ekki með á mínum þannig að ég get það ekki og finn ekkert á youtube til að linka undir vídeóið hans.

https://www.youtube.com/watch?v=FkgHJivH8Ow

Þeim finnst þetta vera svo mikil snilld hjá sér að það væri gaman að sjá hvað þeim finnst um okkar aðferð.

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 23.feb 2022, 17:59
frá juddi
Ææ elsku kallinn hann hefur mist af Paris Dakar uppúr 1990 þar sem þessi búnaður sem við erum að föndra með var notaður af Schlesser

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 23.feb 2022, 21:32
frá Sævar Örn
CTIS hefur lengi verið til, Central tire inflation systems

tildæmis á eldri vörubílum frá rússlandi út í gegnum hjólnáin, og algengt í vörubílum víða í fjalllendi tildæmis bara á spáni og víðar í evrópu og annars staðar, hummer tildæmis í ameríku

þannig þetta er til, og þá algengt að komi út með hjólnái, engar utanáliggjandi slöngur sem gætu skemmst við árekstur við tré og grafna slóða sem algengt er víða ólíkt við það sem við höfum hér


Notagildið fyrir ameríkanann er síðan kannski ekki jafn mikið og fyrir okkur, svipaða sögu fyrir ástralann, þeir hleypa yfirleitt bara einusinni úr og dæla einusinni í meðan við í snjónum og með jöklana erum að regulera með þrýstinginn upp og niður eftir færð og undirlagi

en við megum á íslandi monta okkur af gundsbúnaðnum sem hefur þróast hratt og vel og náð fótfestu, enda afar hentugur í okkar notkun hér

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 23.feb 2022, 22:06
frá einsik
Já ég hef séð myndir af rútum í Andesfjöllum með slöngur. Það var einhver héðan af síðunni sem birti myndir af því úr ferðalagi sínu.

Mér fannst bara svo skondið hvað þeir virðast spenntir fyrir græjunni sinni.

Hvað er sirka langt síðan þetta varð svona algengt hér heima?

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 23.feb 2022, 22:13
frá Sævar Örn
mig minnir að umræðan hafi byrjað á gamla 4x4 spjallinu cirka2006 og þá var það gundur að gera tilraunir sem gáfu góða raun, þetta fór að verða algengt svona um 2015 og nú eru allir og ömmur þeirra með þetta enda bara svínvirkar þetta

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 27.feb 2022, 13:35
frá Axel Jóhann
Bara fyrir mína parta gerði úrhleypibúnaður gæfumun.

Ég fór að drífa talsvert betur, eyða minna eldsneyti og bíllinn vinnur betur, væntanlega vegna þess að maður hleypir úr þegar það er þörf og pumpar svo aftur í.


Þetta er snilldarbúnaður og það besta er hvað þetta er einfalt í raun.

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 27.feb 2022, 23:14
frá einsik
Já þetta er snilld, það veit ég, en er ekki forgangsatriði hjá mér ennþá.

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 02.mar 2022, 18:28
frá juddi
Sævar Örn wrote:mig minnir að umræðan hafi byrjað á gamla 4x4 spjallinu cirka2006 og þá var það gundur að gera tilraunir sem gáfu góða raun, þetta fór að verða algengt svona um 2015 og nú eru allir og ömmur þeirra með þetta enda bara svínvirkar þetta
Var það ekki fyrr sem Gundur gerði þetta ég allavega gerði svona tilraun í standborvél og með þrístiloft rétt fyrir 2000 eftir Paris Dakar áhorf og mér fanst eins og hann hafi farið alka leið með þetta stuttu seinna en kanski liðu nokkur ár

Re: Kanadískur Úrhleypibúnaður. ;)

Posted: 02.mar 2022, 20:40
frá Sævar Örn
Hérna er þessi snilld, jú kannski var þetta fyrr, þetta virðist vera komið í fulla virkni hjá Guðmundi þarna 2005

Man bara eftir umræðunni á gamla 4x4 spjallinu

https://vimeo.com/15199060

https://vimeo.com/15200394