Síða 1 af 1

Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 12:26
frá Sævar Örn
Komið sæl - Hér á spjallinu er fjöldinn allur af handlögnu fólki með svipaða eða sömu dellu og ég, þeirri dellu fylgir oft mikill verkfæra perraskapur.

Og því spyr ég:

'Hvert er þitt uppáhalds verkfæri í þínum bílskúr þessa dagana?'



Ég segi fyrir mitt leiti að það er plasma skurðarvél sem ég eignaðist 2015, kínversk og ódýr.
Þvílíkt snilldar verkfæri til að skera hverskyns málma, og búa til fullkomna hringi eða útskorninga eftir mátum (eða fríhendis) í plötustál.

Image
http://shorturl.at/cjxQ4

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 15:06
frá íbbi
Ég á satt að segja mörg uppáhalds verkfæri

En messa dagana finnst mér afskaplega gaman að vera með klippur/beygjuvél/vals

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 17:41
frá hobo
Þessa dagana er uppáhaldið mitt 3M Roloc Bristle Disc, á vinkilfræs.
Algjör snilld til að hreinsa gamalt pakkningaefni og skít af þéttiflötum án þess að skemma viðkvæmt yfirborð, t.d hedd.
Til í nokkrum stærðum og grófleikum.

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 21:04
frá birgthor
Síðastliðin 13 ár hefur mitt uppáhalds verkfæri verið gengjuþjöl, ég hef ekki tölu á því hverrsu oft hún hefur reddað mér þegar boltar eru illafarnir en engin leið að fá nýja.

ST72100004-600x600.jpg
ST72100004-600x600.jpg (12.05 KiB) Viewed 9560 times

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 22:56
frá Járni
Undanfarið hefur það verið svona græja: https://www.brew.is/oc/Robobrew_With_Pump

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 23:34
frá íbbi
ég verð nú líka að tilefna suðurnar mínar.. miklir gleðigjafar

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 23:35
frá Axel Jóhann
Erfitt að segja eitthvað eitt enn það mest notaða hjá mér er svona 3/8" skrall með löngu skapti og lið.
0101450_10030014_IBTCJKN0818_{4E09AF54-E1C5-4E07-9682-D321A08386A9}_CJKN.jpg.jpeg
0101450_10030014_IBTCJKN0818_{4E09AF54-E1C5-4E07-9682-D321A08386A9}_CJKN.jpg.jpeg (26.22 KiB) Viewed 9510 times


Svo þar á eftir er það dewalt herslulykill 1/4" með bitahöldurum fyrir alla toppa og svo milwaukee 3/8" rafmagnsskrall, eftir þetta bættist í safnið kveikir maður mun sjaldnar á loftpressunni og sleppur þar af leiðandi við mesta hávðann!

Screenshot_20201104-233242_Chrome.jpg
Screenshot_20201104-233242_Chrome.jpg (355.41 KiB) Viewed 9510 times


Screenshot_20201104-233201_Chrome.jpg
Screenshot_20201104-233201_Chrome.jpg (313 KiB) Viewed 9510 times

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.nóv 2020, 23:41
frá Stóri
Járni wrote:Undanfarið hefur það verið svona græja: https://www.brew.is/oc/Robobrew_With_Pump



Er i sama pakka :)

Annars er mitt uppáhalds verkfæri rennibekkurinn, það sem hann hefur reddað mér seinustu ár...

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 05.nóv 2020, 01:59
frá grimur
Hjá mér standa tvö uppúr:
https://www.stanleytools.com/products/automotive-tools/sockets-ratchets/ratchets/38-in-drive-rotator-ratchet/89-962

Og

Screenshot_20201104-204655_Chrome.jpg
Screenshot_20201104-204655_Chrome.jpg (169.78 KiB) Viewed 9491 time


Skrallið er þannig hannað að þegar maður snýr uppá skaftið, þá keyrir skrallið í rétta átt, sama hvora áttina er snúið. Rosalega þægilegt í þröngum aðstæðum.
Búinn að nota sama 3/8" skrallið í sirka 10 ár og það er ekkert að svíkja. Á samt 2 glæný uppi í skáp ef það feilar og þetta fæst ekki lengur.

Knipex tangarlykillinn er alger snilld. Sameinar skiptilykil, rörtöng og jafnvel stundum skrúfstykki í eitt verkfæri. Kjafturinn er sléttur og rífur ekki upp það sem tekið er á.

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 06.nóv 2020, 19:54
frá tommi3520
Sævar þú hefur væntanlega pantað þetta sjálfur af netinu? eftir að ég fór að skoða þessa vél þá er maður alvarlega að hugsa um að kaupa sér svona og losna við allt skurðarykið í loftinu og allt það vesen sem fylgir að skera með slípirokk.

Ertu búinn að mixa þér eitthvað verkfæri til að skera góða hringi? er með panel úr ryðfríu og fattaði ekki að það er ekki séns fyrir mig að bora í hann með dósabor á þeim hraða sem súluborvélin mín leyfir þannig strax kominn í vesen þar. en svona græja myndi leysa það t.d.

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 06.nóv 2020, 22:11
frá Baikal
Stórasleggjann

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 06.nóv 2020, 22:40
frá Sævar Örn
tommi3520 wrote:Sævar þú hefur væntanlega pantað þetta sjálfur af netinu? eftir að ég fór að skoða þessa vél þá er maður alvarlega að hugsa um að kaupa sér svona og losna við allt skurðarykið í loftinu og allt það vesen sem fylgir að skera með slípirokk.

Ertu búinn að mixa þér eitthvað verkfæri til að skera góða hringi? er með panel úr ryðfríu og fattaði ekki að það er ekki séns fyrir mig að bora í hann með dósabor á þeim hraða sem súluborvélin mín leyfir þannig strax kominn í vesen þar. en svona græja myndi leysa það t.d.


Mín kom beint frá aliexpress á ca 30.000 kall á 11.11 tilboði árið 2015, held hún sé á svipuðu verði í dag

Ég keypti líka 'pilot arc' skurðarbyssu, þá er auðveldara að skera óhreint járn og fer betur með skurðarspíssinn.

Ég smíða mér máta fyrir allt sem ég sker út, oft bara úr pitsa kassa en stundum úr áli sem hægt er að klippa með skærum, eða dreg byssuna eftir vinkli ef ég er að skera beinar línur

Hringi geri ég með svona aukahlut:

Image

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 07.nóv 2020, 00:49
frá tommi3520
snilld, takk

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 09.nóv 2020, 17:43
frá grimur
Keypti líka svona CUT50 græju, þurfti að klappa henni eitthvað smá til að fá hana til að virka, rofinn var eitthvað illa lóðaður og svona frágangur ekki alveg til allra mestu fyrirmyndar. Þeir sviku mig líka um jarðkapalinn, en ég nennti ekki að röfla yfir því.
Virkar betur en ég átti von á.

kv
Grímur

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 14.nóv 2020, 12:31
frá petrolhead
Ég vil helst ekki gera upp á milli barnanna minna (verkfæranna) en þessi högglykill er í taæsverðu uppáhaldi
MBK
Gæi

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 15.nóv 2020, 22:06
frá Startarinn
Baikal wrote:Stórasleggjann


Í byssu smíðunum?

Annars held ég að ég grípi oftast slípirokkinn, meira að segja í trésmíði.
En uppáhaldsverkfærið er klárlega keðjusögin, hún er meira að segja mun fjölhæfari en ég taldi í byrjun

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 16.nóv 2020, 22:51
frá petrolhead
Startarinn wrote:
Baikal wrote:Stórasleggjann


Í byssu smíðunum?

Þá erum við sennilega að tala um fallbyssur

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 19.nóv 2020, 22:54
frá Baikal
petrolhead wrote:
Startarinn wrote:
Baikal wrote:Stórasleggjann


Í byssu smíðunum?

Þá erum við sennilega að tala um fallbyssur

Strákar strákar!! þetta er svo einfallt ef það virkar ekki berjið það með sleggju ef það virkar samt ekki berjið það fastar með stærri sleggju
svo hæfir þetta verkfæri svo vel mínum fínlegu skurðlæknishöndum

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 20.nóv 2020, 12:16
frá petrolhead
Það er nú nær lagi að segja að þú sért með tvær áfastar sleggjur en skurðlækna putta :-D

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 22.nóv 2020, 00:09
frá Startarinn
petrolhead wrote:Það er nú nær lagi að segja að þú sért með tvær áfastar sleggjur en skurðlækna putta :-D


Þessir hrammar hans eru mun liprari en maður myndi ætla við fyrstu sýn ;)

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 23.nóv 2020, 12:28
frá Sævar Örn
Til að halda þessari umræðu á lofti þá langar mig að tilnefna annað verkfæri sem er í uppáhaldi hjá mér þessa stundina, það er svona vacúm suga sem ég nota til að loft tæma bremsur, sjúga upp olíu hverskyns.

Algjör snilld fyrir þá okkar sem störfum mikið til einir á verkstæði, ég var 5 mínútur að loft tæma hiluxinn minn en þar voru öll rör lögð ný nema á hvalbaknum og þau rör voru orðin tóm alveg, húkkaði þessu bara við loftpressuna og beið þar til kom bara hreinn vökvi og skrúfaði fyrir. Tæmdi af kúplingunni líka og það var bara eitt handtak en hefur oft verið smá bras að loft tæma með því að pumpa með fetilnum.

https://www.amazon.com/gp/product/B07LG ... UTF8&psc=1

suga2.JPG
suga2.JPG (37.94 KiB) Viewed 8109 times

suga.JPG
suga.JPG (34.99 KiB) Viewed 8109 times

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 03.jan 2021, 19:58
frá Aparass
Ég hafði lengi horft á þessar kínversku plasmaskurðarvélar en aldrei lagt í að prófa þetta.
Svo eftir að ég sá þessi tvö komment hérna í þessum þræði þá ákvað ég að prófa þetta og pantaði mér 60A vél með pilot arch og hún er alveg að koma skemmtilega á óvart.
Þrælgaman að skera með þessu og fínn skurður.
Klárlega eitt af mínum uppáhalds verkfærum núna!

https://www.ebay.com/itm/60A-Air-Plasma ... 2749.l2648

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 03.jan 2021, 20:06
frá dadikr
Ég prófaði svona um daginn

10MN83_AS01.jpeg
10MN83_AS01.jpeg (27.98 KiB) Viewed 7433 times


Algjör snilld

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 04.jan 2021, 09:07
frá jongud
dadikr wrote:Ég prófaði svona um daginn
Algjör snilld


Er þetta ryðbankari?

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 05.jan 2021, 18:39
frá dadikr
jongud wrote:
dadikr wrote:Ég prófaði svona um daginn
Algjör snilld


Er þetta ryðbankari?


Já. Mjög fínt verkfæri. Snyrtileg vinna en svakaleg læti

Re: Ykkar uppáhalds verkfæri?

Posted: 07.jan 2021, 05:27
frá grimur
Hef reyndar ekki notað svona í annað en að banka gjall.
Fannst einhvernveginn eins og að sæmilegur barningur með þessu í suðu sem er ennþá pínu deig minnkaði spennuna í henni. Það passar alveg við trix sem mér var sagt frá varðandi að sjóða blaðfjaðrir...punkta bara smá í einu og klappa svo punktinn með hamri meðan hann harðnar. Hef nú ekki gerst svo frægur að prófa það sjálfur.
EN
Þetta er allavega alveg frábær gjallhamar og sjálfsagt fínn í ryðið líka.