Síða 1 af 1

Lagfæra brettakant

Posted: 31.aug 2020, 11:28
frá johnnyt
Hvað efni mælið þið með til að laga brettakanta ?

Re: Lagfæra brettakant

Posted: 31.aug 2020, 12:20
frá jongud
Það fer allt eftir skemmdunum. Er þetta brotin kantur eða bara ljótt yfirborð?

Re: Lagfæra brettakant

Posted: 31.aug 2020, 12:27
frá johnnyt
Kanturinn er brotinn. Nokkuð hreint brot á miðjunni á honum

Re: Lagfæra brettakant

Posted: 31.aug 2020, 13:00
frá jongud
Þá er líklega best að vinna þetta innanfrá, pússa duglega niður og lagfæra með trefjamottum. Ytra byrðið gæti sloppið með því að laga með fylligrunni og blettun eða heilmálun.

Re: Lagfæra brettakant

Posted: 02.sep 2020, 22:19
frá Startarinn
Slípa niður að innan þartil þú er NÆSTUM því kominn í gegn og gera við með trefjamottum innan frá, svo eins og segir hér að ofan, sparsla og mála að utan

Re: Lagfæra brettakant

Posted: 03.sep 2020, 20:06
frá rockybaby
Sælir ,slípa vel niður að innanverðu 8-12 cm í hvora átt við brotið og setja svo trefjamottur 2x 900 gr eða 3x 600gr , svo að utanverðu slípa niður vel 6-9 cm í hvora átt við brotið og setja 2x 900gr mottu eða 2x 600gr mottu svo slípa yfirborð og sparsla það sem uppá þarf. ef ekki er sett motta á báðar hliðar þá vill þetta springa aftur í brotinu.mbkv