Vanatr hjöruliðskross í Jimmy


Höfundur þráðar
TDK
Innlegg: 105
Skráður: 19.des 2011, 22:11
Fullt nafn: Guðmundur H. Aðalsteinsson

Vanatr hjöruliðskross í Jimmy

Postfrá TDK » 16.aug 2020, 12:30

Hvar fæ ég kross í 2015 Jimmy. Krossinn frá kassa aftur í millikassann.



User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Vanatr hjöruliðskross í Jimmy

Postfrá Kiddi » 17.aug 2020, 18:17

Er ekki umboðið nokkuð sanngjarnt á þessu?


Höfundur þráðar
TDK
Innlegg: 105
Skráður: 19.des 2011, 22:11
Fullt nafn: Guðmundur H. Aðalsteinsson

Re: Vanatr hjöruliðskross í Jimmy

Postfrá TDK » 19.aug 2020, 10:23

Kiddi wrote:Er ekki umboðið nokkuð sanngjarnt á þessu?

Kom í ljós að kossarnir eru þryktir í og kjörnað á eftir þeim. Alveg vonlaust að eiga við þetta. Valið er að fara með þetta í stál og stansa eða kaupa nýtt skaft. Bæði lendir rétt yfir 50k


Axel Jóhann
Innlegg: 290
Skráður: 11.jan 2012, 19:49
Fullt nafn: Axel Jóhann Helgason
Bíltegund: 38" Musso
Staðsetning: 800

Re: Vanatr hjöruliðskross í Jimmy

Postfrá Axel Jóhann » 19.aug 2020, 23:13

Slípa "kjörnfarið" í burtu og punkta svo bjargirnar í eftir viðgerð, þannig er það gert.
1997 Musso 2.9TDI 42"
2001 Nissan Patrol 35"


grimur
Innlegg: 891
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Vanatr hjöruliðskross í Jimmy

Postfrá grimur » 31.aug 2020, 03:49

Oftast fletjast þessi kjörnför út þegar þetta er slegið í sundur.
Aðal vandinn er að miðja þetta aftur með nýjum krossum. Ég mæli með að nota skíðmál og mæla frá björgum upp á brún(með bakendanum á skíðmalinu, pinnanum sem kemur út þegar því er rennt opnu), skrá það niður og merkja. Þannig er hægt að halda sama mismun á milli hliða með nýja krossinn.
Ég græjaði framskaft í Galloper svona, með krossum sem voru nokkrum mm stærri en original. Bara passa að mismunurinn sé eins. Verkfærin sem ég hafði voru skrúfstykki, slaghamar, slípirokkur(til að gera betra pláss innaní fyrir stærri kross), skíðmál, nokkrir toppar í mismunandi stærðum og rafsuðuvél.
Þetta skaft titraði nákvæmlega ekki neitt.
Guðni Sveins man kannski eftir þessum aðförum, ég man að hann fylgdist með álengdar sposkur á svip þar sem ég fékk inni í dótakassanum á Sigló til að græja þetta :-)


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 80 gestir