Síða 1 af 1

Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 29.júl 2019, 19:40
frá sigurdurdarri
Sælir,

Ég á 90' árgerð af hilux og er búið að setja 3 lítra dísel vél úr 4 runner í hann. Núna vantar mig millistykki frá gírkassa upp í hraðamæli en veit ekki nákvæmlega af hverju eða hvar ég á að leita af svoleiðis. Getur einhver snillingur hjálpað mér með þetta? Er opinn fyrir öllum lausnum, þarf ekki endilega að vera millistykki

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 30.júl 2019, 08:18
frá jongud
Er þetta ekki spurning um að fá rétta stykkið í millikassann?
Er þessi Hilux með barka-hraðamæli, eða rafmagns-hraðamæli?

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 30.júl 2019, 12:19
frá beover
Eg er i svipað æfingum, eg set 3 litra landcruiser 90 vel, aftan er 4runner v6 kassi og millikassi(keðja ekki gir...) og eg set rafmagns hraðamæli ur 90 cruiser millikassa og er með mæliborð ur 4runner með rafmagns hraðamæli. Eg er ekki buinn profa hvort það virka samt þetta var allt að passa saman.

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 06.aug 2019, 17:15
frá sigurdurdarri
jongud wrote:Er þetta ekki spurning um að fá rétta stykkið í millikassann?
Er þessi Hilux með barka-hraðamæli, eða rafmagns-hraðamæli?


Það gæti vel verið! Hann er með barka-hraðamæli, veistu hvaða stykki ég þyrfti þá?

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 06.aug 2019, 23:17
frá íbbi
afsakið að ég ræni aðeins þræðinum, en passar bsk kassi úr bensín 4 runner aftan á 3.0l diesel mótorinn?

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 07.aug 2019, 08:31
frá jongud
sigurdurdarri wrote:
jongud wrote:Er þetta ekki spurning um að fá rétta stykkið í millikassann?
Er þessi Hilux með barka-hraðamæli, eða rafmagns-hraðamæli?


Það gæti vel verið! Hann er með barka-hraðamæli, veistu hvaða stykki ég þyrfti þá?


Ég er ekki viss, en mig minnir að einhver hér á spjallinu hafi verið að hræra eitthvað í þessu. Prófaðu að heyra í Arctic Trucks, þeir gætu vitað þetta.

EDIT
Hérna er kannski eitthvað;
https://www.yotatech.com/forums/f116/electrical-mechanical-speedometer-conversion-213468/

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 07.aug 2019, 12:12
frá beover
íbbi wrote:afsakið að ég ræni aðeins þræðinum, en passar bsk kassi úr bensín 4 runner aftan á 3.0l diesel mótorinn?

Ef kassi er ur 3.0 v6 4runner þa passar hun beint á nema þu þarf að nota kuplingshusið af 3.0 diesel kassa. Hvar ertu á landi ?

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 07.aug 2019, 18:37
frá íbbi
brilliant, þá veit maður af því þegar að maður fer að brasa í 4 runner.

ég er vestur á fjörðum

Re: Millistykki frá gírkassa í hraðamæli

Posted: 07.aug 2019, 19:08
frá sigurdurdarri
jongud wrote:
sigurdurdarri wrote:
jongud wrote:Er þetta ekki spurning um að fá rétta stykkið í millikassann?
Er þessi Hilux með barka-hraðamæli, eða rafmagns-hraðamæli?


Það gæti vel verið! Hann er með barka-hraðamæli, veistu hvaða stykki ég þyrfti þá?


Ég er ekki viss, en mig minnir að einhver hér á spjallinu hafi verið að hræra eitthvað í þessu. Prófaðu að heyra í Arctic Trucks, þeir gætu vitað þetta.

EDIT
Hérna er kannski eitthvað;
https://www.yotatech.com/forums/f116/electrical-mechanical-speedometer-conversion-213468/


Takk kærlega fyrir þetta, ætti að hjálpa mjög þegar ég fer að kafa dýpra í þetta mál.