Síða 1 af 1

Söngur í drifi á LC120 eftir hásingaskipti

Posted: 05.júl 2019, 11:19
frá Sveinbjörn Hannesson
Góðan dag,
er einhver hérna sem hefur lent í því að það fer að syngja í drifinu á LC 120 eftir að skipt var um hásingu hjá Toyota.
Er með bíl ekinn um 260 þús sem var verið að skipta um hásingu í og það fór að heyrast í þessu fljótlega á eftir.
Þetta er eingöngu í átaki og á um 70 til 90 km hraða.
Toyota vill ekkert gera og segir þetta ekki koma hásingaskiptunum við. Hef heyrt um þetta en ekki fengið að vita hvernig menn hafa leyst þetta.