Síða 1 af 1
heilsprautun
Posted: 19.jún 2019, 22:09
frá dídí
Hvað kostar uþb að sprauta allann bílinn sinn? Og hvar er þetta gert, ég finn ekkert um þetta á netinu neins staðar..
Re: heilsprautun
Posted: 20.jún 2019, 00:27
frá íbbi
þetta er spurning sem er dáldið erfitt að svara
það eru stórir faktorar sem þarf að taka inn í myndina sem hafa mikil áhrif á útkomuna
.hvernig bíll.
.hversu stór
hvaða gæðalevel er verið að leyta eftir?
hvernig er ástandið á yfirbyggingu og yfirborði bílsins?
heilsprautun á meðalstórum bíl í dag með öllu inniföldu á viðurkenndu verkstæði fer auðveldlega í og langt yfir sex stafa tölu. en með því að eiga kunningja í faginu og ef maður getur tekið einhvern þátt jafnvel í verkinu sprautaranum til auðveldunar (ekki undirvinnu) þá eru við að tala um lægri tölu, þetta eru alltaf fleyrihundruð þúsund í dag engu síður.
Re: heilsprautun
Posted: 20.jún 2019, 00:42
frá dídí
Nú það er svona aðeins dýrara en ég hafði vonast, ég geymi þetta þá til síður hugsa ég en takk kærlega fyrir upplýsingarnar;)
Re: heilsprautun
Posted: 20.jún 2019, 10:01
frá bjornod
Sæl,
Renndu við hjá Nuno Valentim á Kársnesbraut:
https://www.facebook.com/beforeandaftericeland/Fínt að spjalla við hann um svona hluti. Getur gefið þér stærðargráðu á þessu.
Re: heilsprautun
Posted: 21.jún 2019, 22:50
frá dídí
Geggjað takk fyrir það:)