Síða 1 af 1

SOS — vantar eina nál í öxullið í Terrano 2

Posted: 02.des 2018, 10:45
frá hvati
Er að gera dauðaleit að innri öxullið í Terrano 2. Málið er samt þannig að hann fór í sundur í smá harki og ég er búinn að ná að setja hann allan saman aftur fyrir utan eina helvítis nál.

Er einhver hér sem gæti átt ónýtan lið og ég gæti fengið að hirða nál (hún er 2x12mm) eða er einhver að parta Terrano sem ég gæti fengið að komast í?

— Hvati

Re: SOS — vantar eina nál í öxullið í Terrano 2

Posted: 03.des 2018, 02:19
frá grimur
Er ekki sama í einhverjum hjöruliðskross?
Svo gæti t.d. Poulsen átt nálar stakar. Lengri nál má stytta.