Síða 1 af 1

V-8 Benz disel fastur spíss

Posted: 31.aug 2018, 08:15
frá sukkaturbo
Jamm bras í gangi vantar ráð.Er með Benz 400 disel V-8 twin turbó og næ ekki að skipta um spíss.Hann er þvílíkt fastur.Búinn að vera í losunar ferli í 3 vikur og alskyns ryð og losunar efni hafa verið látinn liggja á honum.Er hræddur við að brjóta hann.Eru einhver ráð í boði næ að hreifa hann örlítið til hliðana en þori ekki að taka á fullu afli .Svo??

Re: V-8 Benz disel fastur spíss

Posted: 31.aug 2018, 11:10
frá juddi
Swap i Unimog

Re: V-8 Benz disel fastur spíss

Posted: 31.aug 2018, 13:35
frá sukkaturbo
Jamm nei krakkarnir mínir eiga svona tæki.hann er búinn að vera á verkstæði í einhvern tíma svo ekkert gekk og ég ætla að prufa þetta sjálfur

Re: V-8 Benz disel fastur spíss

Posted: 31.aug 2018, 17:23
frá svarti sambo
Ef að það eru ekki spíssahulsur í heddinu. þá er bara að setja hnall á endann, þar sem að spíssarörið kemur á og dunka hann létt upp.
Nota bara snitt-tein, smá gegnumborað öxulstál og glussaró sem passar á spíssaröraendann á spíssinum.
Það er svo hægt að búa til spíssadrögu með glussaró, snitt-tein og röri líka. Og þá heldur það við hulsuna á meðan að spíssinn er dreginn upp.

Re: V-8 Benz disel fastur spíss

Posted: 14.sep 2018, 12:29
frá sukkaturbo
Jamm spíssinn loks kominn úr. Reyndi að pulla hann úr og líka að keyra hann úr en án árangurs.Gat opnað spíssinn tekið innan úr honum og notað gengjur sem eru inn í honum til að festa snitt tein og koma við bakslagshamri sem ég átti.10 þung högg dugðu og hann kom úr í heilulagi og ekkert tjón á neinu.

Re: V-8 Benz disel fastur spíss

Posted: 14.sep 2018, 15:54
frá Járni
Seigur!