Síða 1 af 1

Hverjir eru bestir!!!

Posted: 17.feb 2011, 21:33
frá powerram
Þarf að láta taka upp bosch stjörnuolíuverk, hvort mæla menn með Framtak Blossa eða Vélalandi?

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 17.feb 2011, 23:00
frá Freyr
Framtak Blossi, hef ekkert nema gott um þá að segja.

Lenti í algjöru skítamáli með Vélaland fyrir mörgum árum og heyrði þá af fleirum sem höfðu svipaða sögu að segja og þá lofaði ég mér því að versla aldrei þar aftur og hef staðið við það auk þess að vara menn við þeim þegar umræða sem þessi kemur upp.

Freyr

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 17.feb 2011, 23:11
frá Ólafur Ragnarsson
Framtak er í lagi.

ég vann þarna sjálfur í nokkur ár og þekki þessa náunga og veit þeir eru mjög góðir

Hins vegar á ég skelfilegar minningar frá viðskiptum við vélaland fyrir nokkrum árum.

Þangað fer ég ekki inn aftur nema tjóðraður.

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 17.feb 2011, 23:40
frá powerram
Takk fyrir þetta strákar! miða við þetta þá held ég að maður muni nú velja Blossa ;)

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 18.feb 2011, 13:02
frá Izan
Sæll

Ég þykist vita að Jeppasmiðjan á Ljónsstöðum hafa verið í bíttibisness með olíuverk. Ég myndi heyra í þeim áður en þú ferð með þetta í viðgerð.

Kv Jón Garðar

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 18.feb 2011, 18:11
frá Rúnarinn
Ekki er númerið á bílnum sem er þarna á myndinni my-080???

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 18.feb 2011, 22:01
frá powerram
jeppasmiðjan er lang ódýrust, hélt að það væri ódýrara að láta gera upp héra á klakanum en það væri ódýrara að kaupa skiptverk úti (með árs ábyrð) og skila ekki því gamla heldur en að láta blossa gera upp! það er mjög skrítið!
Já númerið er MY080 gamli bíllin hans 'Asa málara og svo Andra í Borgarnesi.

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 19.feb 2011, 10:05
frá powerram
MY080

Re: Hverjir eru bestir!!!

Posted: 19.feb 2011, 13:26
frá Rúnarinn
hélt að þessi bíll væri bara í pörtum, gaman að sjá að hann er enn á lífi.