Síða 1 af 1

Miðstöð í Hilux

Posted: 17.feb 2011, 21:05
frá siggi64
Sælir er með 90 módel af Hilux og miðstöðin í honum virðist ganga bara á einum hraða,hafið þið lent í svona ? kvað er til ráða.datt í hug að það gæti verið bilað reley kv Siggi

Re: Miðstöð í Hilux

Posted: 17.feb 2011, 21:38
frá powerram
við erum víst að tala um að þú þurfir að fara að skipta um miðstöðvarmótstöðuna. Minni hraðanir gefa sig fyrst :)

Re: Miðstöð í Hilux

Posted: 17.feb 2011, 21:40
frá Haukur litli
Gengur hún ekki bara á hæsta hraða? Þú þarft þá að skipta um miðstöðvamótstöðurnar. Þær eru á lítilli plastplötu sem er neðst á miðstöðvaboxinu bakvið hanskahólfið. Hún er fest með tveimur skrúfum og það er eitt raftengi neðan á plötunni.

Partanúmerið á henni er 87138-89105, hún kostar ca 5.000 kr hjá Toyota minnir mig.
Image

Re: Miðstöð í Hilux

Posted: 17.feb 2011, 23:15
frá siggi64
Já takk fyrir það, á annan bíl í varahluti ath kvort þetta er í lagi í þeim gamla fyrst kv Siggi

Re: Miðstöð í Hilux

Posted: 18.feb 2011, 02:52
frá Haukur litli
Ég var búinn að leita lengi að notaðri mótstöðu. Þær molna yfirleitt þegar maður hreyfir við þeim.

Re: Miðstöð í Hilux

Posted: 18.feb 2011, 03:01
frá siggi64
það var nú verra, en lýsingin var rétt gengur bara á mesta hraða,veit allavega kvað þarf til og er hæðstánægður með það takk kærlega