Kína dekk.

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 02.feb 2018, 01:40



Fer það á þrjóskunni

User avatar

íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Kína dekk.

Postfrá íbbi » 02.feb 2018, 07:50

það hafa komið upp heilmiklar umræður í kring um þessi,

þeir senda að sjálfsögðu ekki til íslands
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Kína dekk.

Postfrá jongud » 02.feb 2018, 08:20

íbbi wrote:það hafa komið upp heilmiklar umræður í kring um þessi,

þeir senda að sjálfsögðu ekki til íslands


En hvað með að senda á heimilisfangið sitt hjá ShopUSA í Bandaríkjunum?
Það er spurning um hvort það sé hægt?

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 02.feb 2018, 11:02

íbbi wrote:það hafa komið upp heilmiklar umræður í kring um þessi,

þeir senda að sjálfsögðu ekki til íslands

Það finnst mér merkilegt, þar sem að ég hef verið að versla tæki á Alibaba, og það hefur aldrei verið neitt vesen með að fá sent til Íslands. Bæði með flugi og skipi.
Ég prófaði að senda þeim fyrirspurn. Sjáum hverju þeir svara.
Fer það á þrjóskunni

User avatar

íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Kína dekk.

Postfrá íbbi » 02.feb 2018, 17:52

þegar þetta var reynt áður þá vildi seljandinn ekki senda til íslands, ef ég man rétt þá voru þeir samt til í það ef munstrinu yrði breytt. væntanlega til að fría sig frá artic trucks?
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 02.feb 2018, 19:32

Bíddu nú hægur. Er AT með einkaleyfi á að selja þessi dekk fyrir íslenskan markað, eða bara umboðsaðili. Síðast þegar að ég vissi, þá er búið að afnema þetta umboðsbull og fólk má versla viðkomandi vöru hvar sem er í heiminum og hjá hverjum sem er. Umboðin hér á landi eru t.d. skildug til að þjónusta vöruna sína, þó svo að þú flytjir hana inn sjálfur og er í ábyrgð, eins og t.d. bíl eða bátavél o.s.frv. Það er kannski reynt að mótmæla, en það virkar ekki nema að neytandinn leyfi því að virka.
Fer það á þrjóskunni


Robert
Innlegg: 181
Skráður: 11.mar 2013, 18:16
Fullt nafn: Róbert Guðrúnarson

Re: Kína dekk.

Postfrá Robert » 02.feb 2018, 20:08

Nokia framleiðir þessi dekk fyrir AT, ég veit að fólksbíladekkinn eru framleid í Finnlandi og Lettlandi.
Ef einhver verksmiðja er að framleiða þetta fyrir einhvern annan, þá hefur hann ekki rétt á að selja það út af höfundaleyfi.
En ef hann vil framleiða með öðru munstri og það yrðu staðlar sem Nokia væri farið eftir með efnið í dekkinu, þá væri ég til í þannig dekki.
Það væri gaman að kanna þetta betur.

User avatar

íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Kína dekk.

Postfrá íbbi » 02.feb 2018, 20:31

um það snýst málið að mér skylst, höfundarétt á munstrinu,
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.


Robert
Innlegg: 181
Skráður: 11.mar 2013, 18:16
Fullt nafn: Róbert Guðrúnarson

Re: Kína dekk.

Postfrá Robert » 02.feb 2018, 20:38

já AT á munstrið og Nokia efnisinnihald, (gúmmí blöndu.)


olafur f johannsson
Innlegg: 703
Skráður: 14.aug 2010, 21:35
Fullt nafn: ólafur finnur jóhannsson
Bíltegund: Toyota Yaris GRMN
Staðsetning: Akureyri

Re: Kína dekk.

Postfrá olafur f johannsson » 02.feb 2018, 21:44

At munstrið er samt fengið hjá Michelin ivalo dekkjunum
Image
Toyota Yaris GR 4 2020
Hilux Sr5 22re 1995

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 02.feb 2018, 21:52

Það þarf nú að gera svo litlar breytingar til að það sé hægt að segja að þetta sé ekki það sama. Sennilega nóg að breyta einni rönd í munstrinu, til að þetta sé ekki það sama. Þetta er eins og með eurovision lögin, það eiga allir eitthvað í þeim. eða telja sig eiga.
Fer það á þrjóskunni

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Kína dekk.

Postfrá jongud » 03.feb 2018, 10:25

íbbi wrote:um það snýst málið að mér skylst, höfundarétt á munstrinu,


Örugglega um höfundarrétt á dekkinu í heild sinni. En það væri gaman að vita hve lengi slíkur höfundarréttur gildir.
Hins vegar er spurning hvort þessi ódýru dekk séu eitthvað sem hefur verið tekið til hliðar úr framleiðsluferlinu af því að þau standast ekki gæðakröfur.
Eða jafnvel eitthvað sem er steypt í sama mótinu með ódýrari efnum.

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Kína dekk.

Postfrá Sævar Örn » 03.feb 2018, 10:43

í kína er verkamönnum stundum borguð laun með vörunni sem þeir framleiða, sem þeir mega svo selja sjálfir á markaði, þetta hef ég beint frá seljanda á ali express sem seldi mér hedd og túrbínu í hyundai, orginal hlutir sem eru teknir fram hjá á færibandinu og gæðamunurinn var enginn á því sem ég tók af bílnum mínum, þetta kom í hyundai merktum umbúðum og merkið grafið í mótið
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Kína dekk.

Postfrá íbbi » 03.feb 2018, 14:07

svona án þess að þora hengja mig upp á það, þá myndi ég halda að þetta sé bara framleiðandinn svona "on the side" sést þarna á síðuni hvurslags magn maður getur fengið, sem er gríðarlegt

eins og sævar segir þá hefur maður keypt hluti þaðan á brot af raunvirði sem er ekki að sjá að sé neitt annað en original varan
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 03.feb 2018, 16:49

Hrísgrjónaæturnar eru snillingar í copy and paste framleiðslum. Margir reynt að hanka þá, en ekki tekist ennþá, eftir minni bestu vitund. Breyta bara nafninu á vörunni. Ýmist með einum staf eða bara alveg. Þeir eru að framleiða megnið af öllum þessum fínu merkjum og vörum. Eiga kannski að framleiða 1000 stk fyrir einhvern, en framleiða 2000 stk. Sá sem þeir framleiða fyrir fær sín 1000 stk og svo selja þeir hin 1000 stk á kúk og kanil. Hef t.d. verið að versla sandvik rennistál hjá þeim, fyrir brot af verðinu sem það fæst á annarstaðar. engin munur á vörunni og í sömu pakkningum og merkt sandvík. Sama vörunr. og allt.
Fer það á þrjóskunni

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Kína dekk.

Postfrá ellisnorra » 05.feb 2018, 18:38

Varstu búinn að fá svar Elías?
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 05.feb 2018, 19:04

Ekki alvöru svar. Bara spurningu um, hvort að ég væri með dekkjasölu eða til eigin nota og hvort að ég væri bara með eina stærð í huga o.s.fr.
Set svarið hér inn, þegar að það kemur. spurning um að ýta á eftir því, þar sem að helgin er liðin.
Fer það á þrjóskunni

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 06.feb 2018, 03:30

Þeir runnu á rassgatið með þetta. sennilega af því að ég var ekki að tala um heilan gám eða svo.

Buðu mér bara þetta í staðinn.

Lakesea+MT+Tires.xlsx
(1.57 MiB) Downloaded 370 times


Fann svo þennan, ef við viljum taka einn 20 feta gám.

https://www.alibaba.com/product-detail/ ... 1586ERQtQH
Fer það á þrjóskunni


petrolhead
Innlegg: 343
Skráður: 19.nóv 2015, 21:00
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Bíltegund: Dodge Ram

Re: Kína dekk.

Postfrá petrolhead » 06.feb 2018, 08:39

20' gámur er 2,44 x 2,6 x 6,06m.
Lauslega reiknað m.v liggjandi dekk þá fara 7 dekk í hæðina, 6 dekk á langdina og 2,5 á breyddina s.s 7x2,5x6= 105 dekk. Eflaust hægt að raða þessu hentugar og kannski ná 120 stk í gáminn og það eru þá 30 gangar af dekkjum. Þó að það kostaði 500þ að flytja gáminn þá er það ekki nema 5000kall á dekkið.

Sett fram af bestu vitund og algerlega án allrar ábyrgðar.
Gæi
Dodge Ram 1500/2500-40"

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 06.feb 2018, 12:53

Djöflaðist aðeins meira í fyrri framleiðandanum og spurði þá, af hverju þeir væru að auglýsa hluti sem væru svo ekki í boði.
Hún sagði að þeir væru að framleiða þetta, en ekki sem stendur og magnið væri of lítið.
Fer það á þrjóskunni

User avatar

Hjörturinn
Innlegg: 643
Skráður: 01.feb 2010, 21:44
Fullt nafn: Hjörtur Már Gestsson
Bíltegund: Grand Cruiser 4.0TDI

Re: Kína dekk.

Postfrá Hjörturinn » 06.feb 2018, 13:25

og ekkert nefnt um fjölda sem þyrfti til að hægt væri að versla af þeim?
Dents are like tattoos but with better stories.

User avatar

ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Kína dekk.

Postfrá ellisnorra » 07.feb 2018, 23:17

En þeir segja að lágmarks pöntun sé 4, þeir verða að standa við það. Ef þetta er að renna út um þúfur þá er nú allt í lagi að benda þeim á að ali frændi sé nú kannski ekki ánægður með að hlutir standist ekki.

En ef menn ætla í hóppöntun þá er ég pottþéttur í einn gang. Jafnvel tvo, ef verðið er alveg svo gott.
Ef einhver hér er "inni" í einhverskonar gámaviðskiptum við einhverja í kína, td álver (ég veit fyrir víst að það koma ofboðslega margir gámar af forskautum frá kína, amk í Norðuráli) þá væri kannski hægt að nota það eitthvað. Kasta þessu bara svona fram :)
http://www.jeppafelgur.is/


grimur
Innlegg: 890
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Kína dekk.

Postfrá grimur » 08.feb 2018, 02:40

Ef þetta eru fölsuð AT 405 dekk, semsagt framleidd framhjá samningi við eiganda hönnunarinnar/mótanna, og með merki Arctic Trucks, þá held ég nú að AT myndi ekki láta innflutning á heilum gám af þeim eiga sig.
Það er aldrei að vita hverskonar hrat er notað í svona framhjáframleiðslu, alls ekki hægt að treysta því, og svo ekki sniðugt að láta gera þetta upptækt.
Þó að deila megi um verðlagningu AT á dekkjum þá er réttur þeirra til að vernda eigið vörumerki nokkuð skýr. Ef okkur finnst AT 405 of dýr, þá eigum við bara að sleppa því að kaupa þau, þá neyðast þeir á endanum til að lækka verð eða hætta.
Kv
Grímur

User avatar

Höfundur þráðar
svarti sambo
Innlegg: 1270
Skráður: 15.okt 2013, 19:45
Fullt nafn: Elías Róbertsson
Bíltegund: F350 38,5"
Staðsetning: Ólafsvík

Re: Kína dekk.

Postfrá svarti sambo » 10.feb 2018, 14:05

elliofur wrote:En þeir segja að lágmarks pöntun sé 4, þeir verða að standa við það. Ef þetta er að renna út um þúfur þá er nú allt í lagi að benda þeim á að ali frændi sé nú kannski ekki ánægður með að hlutir standist ekki.

En ef menn ætla í hóppöntun þá er ég pottþéttur í einn gang. Jafnvel tvo, ef verðið er alveg svo gott.
Ef einhver hér er "inni" í einhverskonar gámaviðskiptum við einhverja í kína, td álver (ég veit fyrir víst að það koma ofboðslega margir gámar af forskautum frá kína, amk í Norðuráli) þá væri kannski hægt að nota það eitthvað. Kasta þessu bara svona fram :)


Elli ég benti þeim á það og svarið er hér að ofan. En ef að menn eru að spá í heilan gám, þá er líka spurning með þennan seinni framleiðanda og fá þetta í þeim stærðum sem menn vilja. Ef það er hægt.
Er að drukkna í vinnu sem stendur og væri til í að henda boltanum á næsta aðila. Ef áhugi er fyrir þessu.
Fer það á þrjóskunni


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 18 gestir