Síða 1 af 1
					
				Nota 241 millikassa við 4L60E???
				Posted: 30.aug 2017, 09:57
				frá Robert
				Góðan daginn,
Er mikið mál að nota 241 millikassa í staðinn fyrir 246 var það ekki (249) þá rafmags vesenið?
			 
			
					
				Re: Nota 241 millikassa við 4L60E???
				Posted: 30.aug 2017, 12:25
				frá jongud
				Nákvæmlega hvað ertu að gera?
Ertu að setja 4l60E skiptingu í jeppa sem var með NP249 millikassa ?
			 
			
					
				Re: Nota 241 millikassa við 4L60E???
				Posted: 30.aug 2017, 12:43
				frá Robert
				Já ég er með 99 5,3 Vortec, 4L60e sem var með 249 millikassa og lúmið af því.
En vildi nota 241 millikassa ætla að setja þetta í Cherokee.
			 
			
					
				Re: Nota 241 millikassa við 4L60E???
				Posted: 31.aug 2017, 08:11
				frá jongud
				Robert wrote:Já ég er með 99 5,3 Vortec, 4L60e sem var með 249 millikassa og lúmið af því.
En vildi nota 241 millikassa ætla að setja þetta í Cherokee.
Þetta ætti að geta gengið, þú þarft kannski hring á milli, s.k. "clocking ring" til að 241 kassinn sé með rétta afstöðu á framúttakinu.
Svo er spurning með rillufjöldan á inntakinu. Kannski þarftu að taka inntakið úr 249 kassanum og setja í hinn, það ætti að passa á milli (spurning með legustærð).
Svo þarf kannski líka að huga að rafmagnslúminu. Ef 249 kassinn hefur verið með einhverja skynjara fyrir tölvuna þá þarf líklega að redda því einhvernveginn. Skyjararnir gætu passað á milli enda millikassarnir náskyldir.
Ég mæli eindregið með að þú hafir samband við einhverja sérfræðinga í þessu, t.d. Jeppasmiðjuna á Ljónsstöðum.
 
			
					
				
				Posted: 31.aug 2017, 18:21
				frá íbbi
				eldri bílarnir eru með 4l60E og np241, og np 243 líka
			 
			
					
				Re: Nota 241 millikassa við 4L60E???
				Posted: 31.aug 2017, 19:58
				frá Robert
				Ég veit að hann passar upp á öxulinn, ég tók rofana úr 246 kassanum. fá göt til að passa semsagt. Lega en það sem er inn í millikassanum sem les vss og hitt plöggið þarf eitthvað að breyta þar?
			 
			
					
				Re: Nota 241 millikassa við 4L60E???
				Posted: 01.sep 2017, 08:09
				frá jongud
				Robert wrote:Ég veit að hann passar upp á öxulinn, ég tók rofana úr 246 kassanum. fá göt til að passa semsagt. Lega en það sem er inn í millikassanum sem les vss og hitt plöggið þarf eitthvað að breyta þar?
Úr því að kassinn og plöggin passa á milli ætti þetta að vera OK, sérstaklega af því að kassarnig eru með sama lágadrifshlutfall, (2,72) þannig að þá ætti tölvunni að vera sama hvor kassinn er, ef hún þarf að fá rétt hlutfall frá VSS.
 
			
					
				Re: Nota 241 millikassa við 4L60E???
				Posted: 01.sep 2017, 11:08
				frá Robert
				Æðislegt takk fyrir svörin.