Síða 1 af 1
BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 20.apr 2017, 10:22
frá karlguðna
Er you tube að fífla mann ?? maður væri sáttur við svona karbartor á 460 vélina og géta keyrt mest á vatni :) hafa menn séð þetta ??
https://www.youtube.com/watch?v=lSiShiu9Sgs bkv: Kalli
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 22.apr 2017, 03:17
frá grimur
Ótrúlega mikið rugl. Nema hann sé búinn að finna lausnina á Cold Fusion...
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 22.apr 2017, 06:08
frá emmibe
Myndi fara varlega í svona spjall hérna Kalli, að fenginni reynslu hér hafa menn mjög takmarkaðann áhuga á öllu sem við kemur "The laws of thermodynamics" sem er reyndar mjög skrítið miðað við breytingar bílanna sem sumir eru á.
Gaman samt að sjá að Grímur nota orðið "nema" sem gæti nú bennt til efasemda :-)
Eigið góðann dag.
Kv. Elmar
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 22.apr 2017, 18:15
frá karlguðna
hahaha já betra að fara varlega en það er alltaf gaman svona "uppfynningum" maður gælir við að svona lausnir :) ég var tildæmis að "fynna upp" með aðstoð eins fræðingsinns hér á spjallinu að innsogið verður að fara AF !!!!! og þá er minn kominn niður í 25-26 l. á hundraði en var ca.8 lítrum meira ! svo uppfynningar eiga fullan rétt á sér :)
kv:Kalli
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 22.apr 2017, 22:48
frá grimur
Jájá, uppfinningar eiga alveg fullan rétt á sér finnst mér, enda sagðist ég ætla að verða uppfinningamaður þegar ég var 6 ára. Er að vinna í gráa hárinu.
Aftur að efni þráðarins, að storka algerlega lögmálum varmafræðinnar og framleiða orku úr engu er eilífðarvélar eltingaleikur sem ótrúlega margir hafa látið ginna sig í. Sumir trúa meiraðsegja ruglinu í sjálfum sér.
Skarplega athugað með orðið "nema", og hugsanlegar efasemdir....kaldhæðni er nú okkar þjóðaríþrótt frá landnámi ekki satt?
Grímur
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 25.apr 2017, 11:21
frá emmibe
Kalli, ég sendi þér link í PM.
Kv. Elmar
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 25.apr 2017, 15:30
frá emmibe
Prófessor sat í farþega flugvél og var bennt á að kíkja nú út um gluggann, það væri eitthvað skrítið svífandi við vængabroddinn á þotunni kannski UFO? Kallinn sagði nei, ég vill ekki sjá þetta því ég trúi ekki á svona hluti :-)
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 25.apr 2017, 19:19
frá íbbi
Nei hættu nú alveg.. ekki þetta chemtrail bull hingað
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 26.apr 2017, 15:37
frá emmibe
Kalli, ég sendi þér PM.
Kv. Elmar
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 26.apr 2017, 17:13
frá karlguðna
Ég er kominn með þetta :)
http://www.ebay.com/itm/HHO-HHO-DRY-CEL ... rb&vxp=mtr hvað ætli fordin lækki eiðsluna mikið ? :)
Re: BETRI BLÖNDUNGUR .:)
Posted: 26.apr 2017, 18:27
frá emmibe
Bara svo það sé á hreinu og að gefnu tilefni að ég á engann þátt í þessu hér fyrir ofan :-) vantar ekki meira drull yfir mig.... og segi ekki meir..Kveðja Elmar