351 w heddpakkning

User avatar

Höfundur þráðar
karig
Innlegg: 335
Skráður: 01.feb 2010, 11:48
Fullt nafn: Kári Gunnarsson
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Varmahlíð

351 w heddpakkning

Postfrá karig » 23.jan 2017, 10:57

Daginn, eru meiri eða minni líkur að hedd aflagist þegar heddpakkning fer í þessum vélum? Þetta er í Econoline, vatnslás bilaði og sauð á draslinu og blæs út í vatnið eftir það. Kv, Kári.



User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: 351 w heddpakkning

Postfrá jongud » 23.jan 2017, 12:14

Maður hefur séð í greinum í erlendum tímaritum þegar verið er að taka vélar upp að þá er notuð réttskeið og þykktarmál til að athuga hvort heddið sé eitthvað undið. Viðgerðarbækur sýna líka hvernig þetta er gert.
Allavega er vissara að rífa heddin af og tékka á þeim og jafnvel (láta) þrýstiprófa þau.
Hedd á vélum eru sum ansi viðkvæm ef það sýður á mótornum og geta undist eða sprungið.

Þegar ég var að byrja í þessu sporti kringum '89 var ég í veseni með Chevy 350 hedd. Fann út að hvorugt heddið var undið en samt blés út. Fann að lokum smá sprungu í öðru heddinu undir útblástursventli.

User avatar

Höfundur þráðar
karig
Innlegg: 335
Skráður: 01.feb 2010, 11:48
Fullt nafn: Kári Gunnarsson
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Varmahlíð

Re: 351 w heddpakkning

Postfrá karig » 23.jan 2017, 12:50

Hverjum er best treystandi til að þrýstiprufa og plana ef með þarf? Kv, k.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 20 gestir