Síða 1 af 1
Loftdæla
Posted: 10.des 2016, 20:12
frá Rögnvaldurk
Sælir,
Hefur einhver reynslu af þessum Superflow loftdælum sem AB varahlutir selur?
Takk og kveðja, Rögnvaldur
Re: Loftdæla
Posted: 11.des 2016, 15:52
frá olei
Ef þú ert að meina rauðu dælurnar á myndinni - Superflow...
Einhversstaðar í kína er risafabrikka sem framleiðir þessar dælur sem síðan eru seldar undir ótal nöfum. Superflow, T-MAX, Smittybuilt o.s frv. og nokkur verðmunur er á milli merkja. Ég hef séð því haldið fram þær séu ekki jafnar að gæðum en hugsanlega er það nú bara sölumennska. Heilt yfir hefur sýnst þessar dælur fá þokkalegar umsagnir. Fylgidótið með þeim þykir samt ekki merkilegt. Slangan og pumpustútar og þessleiðis dótarí.
Re: Loftdæla
Posted: 11.des 2016, 18:14
frá grimur
Hef notað svona dælu. Virkar þokkalega bara. Myndi ekki nenna að pumpa í 44" með þessu nema í neyð samt.
Re: Loftdæla
Posted: 11.des 2016, 20:08
frá olei
Held að stærsta dælan þarna MV90 eigi að dæla eitthvað svipað og Fini.