Síða 1 af 1

Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 01.okt 2016, 11:06
frá reyktour
Er með auka mistöð sem er tengd á vélarvatnið.
Hagar sér mjög undarlega.
Hverjir eru snillingar í miðstöðvum??

Re: Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 02.okt 2016, 08:15
frá sukkaturbo
Hvernig undarlega

Re: Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 02.okt 2016, 12:40
frá jeepcj7
Ef þú ert með webasto þá getur þù lesið út bilana códa með því að telja blikkin í ljósinu á ræsihnappnum.

Re: Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 02.okt 2016, 15:32
frá reyktour
Ekki webasto, því miður.
Hrekkur stundum í gang og stundum alveg steingeld

Re: Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 02.okt 2016, 15:47
frá svarti sambo
Ertu búinn að prófa að skifta um kertið í henni.

Re: Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 02.okt 2016, 16:08
frá haffij
Ég hef fundið bæði ísetningar og viðgerðarhandbækur fyrir allar miðstöðvar sem ég hef leitað að eftir nokkurra mínútna gúggl.

Það gæti hjálpað helling að segja hvernig miðstöð þú ert með.

Re: Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 02.okt 2016, 17:44
frá jeepcj7
Síðasta skipti sem ég átti við webastörf var utaná liggjandi hitanemi bilaður og það var nóg að taka hann úr sambandi og þá virkaði allt flott. Hann er ss termostat fyrir miðstöðina og mig minnir að hún hafi verið að virka stundum áður en ég aftengdi nemann.

Re: Miðstöðvar sérfræðingar.

Posted: 02.okt 2016, 20:17
frá haffij
Ég hef rekið mig á að eftir að hafa staðið lengi ónotaðar, til dæmis nokkra mánuði yfir sumarið, hafa olíudælurnar staðið eitthvað á sér og dælt of litlu í hverjum púlsi.