Síða 1 af 1

Ventlaskiptaáhald?

Posted: 25.júl 2016, 22:20
frá thor_man
Hvar fæst svona áhald til að skipta um gúmmíventla í felgum?

M.kv.
ÞB.

Re: Ventlaskiptaáhald?

Posted: 26.júl 2016, 00:34
frá HjaltiB
ég hef nú bara smurt þetta vel og dregið í með töng. getur að sjálfsögðu skemt út frá sér ef illa gengur. Mig minnir að N1=bílanaust hafi verið með þetta. gætir líka prufað að ræða við helstu dekkjaverkstæði.

Re: Ventlaskiptaáhald?

Posted: 26.júl 2016, 01:48
frá thor_man
HjaltiB wrote:ég hef nú bara smurt þetta vel og dregið í með töng. getur að sjálfsögðu skemt út frá sér ef illa gengur. Mig minnir að N1=bílanaust hafi verið með þetta. gætir líka prufað að ræða við helstu dekkjaverkstæði.

Já, tókst að koma ventlinum í með grönnum bolta með nokkurn veginn svipuðum gengjum og pílan, og svo nægri jómfrúarfeiti. En ég tékka á Bílanaust og öðrum álíka, takk fyrir ábendinguna.

Re: Ventlaskiptaáhald?

Posted: 26.júl 2016, 20:20
frá Raggi B.
Hef bara dregið þá í með framlenginu á ventla, sett á það vice grip og smá dekkjasmurningu þá rennur þetta fínt í.

Re: Ventlaskiptaáhald?

Posted: 26.júl 2016, 23:55
frá thor_man
Raggi B. wrote:Hef bara dregið þá í með framlenginu á ventla, sett á það vice grip og smá dekkjasmurningu þá rennur þetta fínt í.

Góð ábending, takk. Prófa þetta.

Re: Ventlaskiptaáhald?

Posted: 27.júl 2016, 10:15
frá svarti sambo
Mig minnir að þetta sé til í dekkjahöllinni, poulsen og N1.