Síða 1 af 1

Reynsla af Terrano II 2.4 bensín, eyðsla og fl.??

Posted: 05.feb 2011, 16:09
frá SIE
Þekkir einhver til Terrano II 2.4 bensín? Ég er að skoða ´97-´98 bíla og er að velta fyrir mér hvernig þeir eru að koma út

Hvernig er með eyðslu?
Er eitthvað sem er mikið að klikka í þeim?
Er eitthvað sem maður þyrfti að skoða sérstaklega þegar maður prófar??

Re: Reynsla af Terrano II 2.4 bensín, eyðsla og fl.??

Posted: 05.feb 2011, 19:13
frá Stebbi
Ég hef enga reynslu af þeim breyttum en þetta er frekar þreytt vél sem þarf að snúa soldið. Kanski breytist það allt við stærri dekk og rétt hlutföll, minnir að þeir séu frekar hátt gíraðið orginal.

Re: Reynsla af Terrano II 2.4 bensín, eyðsla og fl.??

Posted: 05.feb 2011, 19:34
frá SIE
ég er bara að spá í óbreyttan bíl, en hljómar sem dálítill bensínsvelgur ef hún er þreytt og þarf að snúast mikið......eða hvað?

Re: Reynsla af Terrano II 2.4 bensín, eyðsla og fl.??

Posted: 05.feb 2011, 19:35
frá Offari
Ég átti "99 módelið hann var að eyða 11- 12 lítrum á langkeyrslu. Ég keyrði þann bíl ca 40þús og þurfti oft að skipta um viftureim og einu sinni að herða á hjólalegum. Semsagt eini gallinn var að viftureimin entist illa að öðru leiti góður og þægilegur bíll í rekstri og ekki ´voru viftureimarnar dýrar en samt hvimleitt því allt í einu hætti bíllinn að hlaða fyrirvaralaust en stundum heyrði maður þegar reimin fórað snuða og gat þá hert áður en hún glasseraðist.

Re: Reynsla af Terrano II 2.4 bensín, eyðsla og fl.??

Posted: 06.feb 2011, 18:00
frá SIE
er þá innanbæjareyðsla 16-17 lítrar eða hvað?

Hvernig er drif og kassar að standa sig í þeim? Er eitthvað vélavesen sem hefur verið að hrjá þá?

Re: Reynsla af Terrano II 2.4 bensín, eyðsla og fl.??

Posted: 07.feb 2011, 22:42
frá Amer
Ég átti svona bíl árg.99 óbreyttan, og það var ekkert vesen með hann, en hann var að eyða um 15-16 innanbæjar, og þeir eru mjög latir, og guð hjálpi þér ef þú ætlar að halda ferðinni upp brekkur :)
En það var gott að keyra hann.