Síða 1 af 1

Samsláttarpúðar ?

Posted: 18.júl 2016, 09:58
frá Stjáni Blái
Er eitthver hér sem er með það á hreinu hvað þessi svokallaði "benz" samsláttarpúði pressast mikið saman ?

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 18.júl 2016, 11:01
frá Hjörturinn
fara 2/3 saman heyrði ég einhversstaðar, sel það ekki dýrara en ég stal því.

En ég myndi samt alltaf gera ráð fyrir að geta farið í samslátt eins og púðinn sé ekki á staðnum, fara einhvernvegin alltaf meira en maður heldur :)
Leiðinlegt líka að fara með hásinguna í mótorinn eða eitthvað þegar púðinn yfirgefur einhverntíman samkvæmið

Hér situr bíllinn hjá mér á púðunum

Image

Fara töluvert betur saman í átökum held ég þó gormurinn haldi á móti auðvitað

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 18.júl 2016, 11:18
frá Stjáni Blái
Ertu þetta svona benz púðar sem þú er með hjá þér að framan Hjörtur ?

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 18.júl 2016, 12:36
frá Hjörturinn
Já, er reyndar búinn að skera neðsta hlutann af þeim til að stytta þá

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 18.júl 2016, 15:09
frá Brjotur
þetta er það sem ég var að benda á á facebook , tel það vera sama aðilann að spyrja :) svona fer samsláttarpúðinn við að sitja á honum í fullri þyngd bílsins , spáið svo í það hvað gerist í akstri og það slær saman á full force , Hjörtur ég hefði ekki stytt hann , :) þetta eru miklir kraftar í gangi

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 18.júl 2016, 16:17
frá Hjörturinn
ég vill bara hafa fjöðrun bílsins með gormum og dempurum, ekki stuðpúðum (lengja í samslátt) þessvegna stytti ég hann, á 2 vara sem eru í fullri lengd ef þetta fer í hundaskít hjá mér, þeas ef ég keyri þennan bíl nokkurntímann :P

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 19.júl 2016, 10:23
frá Stjáni Blái
Já það passar Helgi. Ég setti þessa fyrirspurn á flettismettið líka. Þar sem að mér hefur fundist að jeppamenn á jeppaspjallinu séu í sumarfríi ! Honsvegar er ágætt að deila því hér líka að ég setti svona samsláttarpúða í pressu og fékk það út að hann fer u.þ.b 55% saman eða 60mm

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 19.júl 2016, 14:12
frá Hjörturinn
Þú hefur þó ekki fundið út við hvaða kraft þetta var?

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 19.júl 2016, 18:45
frá Stjáni Blái
Nei því miður þá var ekki mælir á pressunni. En þeir voru vel bólgnir. Miðað við þetta þá gæti ég ýmindað mér að hann fari max 70mm saman í miklum djöflagangi

Re: Samsláttarpúðar ?

Posted: 19.júl 2016, 23:50
frá olei
Ég sting þessum púðum upp í 2cm rörbút. Það heldur við þá þannig að þeir leggist ekki á hlið ef það er klaki á milli. Minnkar hættu á því að þeir týnist. Mér sýnist að það sé ekki nema 1cm upp í rörið þegar þeir klessast mest saman. Þ.e.a.s þeir fara niður í sirka 3cm í miklum gleðihoppum.