Patrol - Rosalegt skröllt í lausagangi


Höfundur þráðar
Bolti
Innlegg: 31
Skráður: 28.okt 2014, 14:22
Fullt nafn: Axel Már Karlsson

Patrol - Rosalegt skröllt í lausagangi

Postfrá Bolti » 24.maí 2016, 19:57

Er með Patrol árgerð 2005. Ég er að lenda í svakalegu skröllti hjá mér í lausagangi. Það lýsir sér þannig að það er eins og það sé eitthvað inn í pústinu sem skoppast til og frá en þagnar þegar ég gef inn, og þá er nóg að gefa bara örlítið inn til að þetta þagni. Ég er búinn að taka hressilega á pústinu allveg frá túrbínu og aftur úr og það virðist vera pikkfast og ekki að rekast í neinsstaðar.

Kannast einhver við svona vandamál ? :/



User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1929
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Patrol - Rosalegt skröllt í lausagangi

Postfrá Sævar Örn » 24.maí 2016, 20:48

Gæti verið að element inn í hvarfakútnum sé orðið laust, það er alls ekki óalgengt. Ættir að heyra það ef þú hristir pústið duglega og hlustar við hvarfakútinn...

https://www.youtube.com/watch?v=xLaFNdrv20s
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur