Síða 1 af 1
Dekkjaskeri
Posted: 21.jan 2016, 19:08
frá andrig
Góða kvöldið.
Við þurfum að skera 4stk 46" MT.
Hvaða græju mæla menn með í þeim málum?
Hvort sem er af internetinu eða hér heima.
Re: Dekkjaskeri
Posted: 24.jan 2016, 13:46
frá jeepcj7
Hæ ég hef skorið nokkur dekk með 2 gerðum af hnífum
http://www.panguk.com/tyre-regroover-p-508.html Þessi er mjög góður og N1 hefur selt þá hér á landi auðvelt að stilla bæði hita og skurðarbreidd/dýpt.
Og svo versluðum við félagarnir svona hníf
http://uedata.amazon.com/Ideal-Tire-Gro ... B004AW7XYU Hann er ódýr en virkar alveg er búinn að taka 1 46 tommu gang með honum en hann er ekki með neinni hita stillingu er bara eins og lóðbolti þarf aðeins að bíða eftir að hann hitni og ef á að skera breiðari skurð þá þarf að versla annan haus á hann það fylgir bara 1 með og hitinn er varla nógu mikill ef á að skera mjög djúpt +10 mm
Re: Dekkjaskeri
Posted: 24.jan 2016, 14:29
frá jongud
Bara passa að kaupa 220-volta skera,
ekki 110-volta...
Re: Dekkjaskeri
Posted: 24.jan 2016, 16:31
frá svarti sambo
Við keyptum okkur tveir svona saman. Og hann svín virkar. Mæli með þessum.
http://www.ebay.co.uk/itm/Professional- ... c#shpCntId
Re: Dekkjaskeri
Posted: 24.jan 2016, 20:30
frá juddi
Mæli með þessum neðsta er nánast eins og minn og sá albesti sem ég hef prufað
Re: Dekkjaskeri
Posted: 24.jan 2016, 22:04
frá jeepcj7
Elías og eða Dagbjartur hvað eru svona flottir hnífar að kosta?
Re: Dekkjaskeri
Posted: 24.jan 2016, 22:13
frá svarti sambo
Sæll Hrólfur.
Þegar að ég keypti minn í sumar, þá kostaði hann 50.000kr. Fékk að vísu frían flutning og engan toll. þar sem að þetta var innan marka hjá aðilanum sem tók hann fyrir mig. Hann kostar 300 pund til Íslands með flutning + innflutningsgjöld.
Re: Dekkjaskeri
Posted: 24.jan 2016, 23:36
frá ellisnorra
Hafa menn prufað sveitaaðferðir einsog tvöfalt hjólsagarblað í hjólsög með landi eða keðjusög? Maður hefur séð allskonar hillbilly video á youtube og margt virðist virka helvíti vel, sérstaklega svona multitool.
https://www.youtube.com/watch?v=RwAX5AgPQcohttps://www.youtube.com/watch?v=2T2XRFNp-l0https://www.youtube.com/watch?v=4p6UjrJl6A0Og fullt fleira.
Re: Dekkjaskeri
Posted: 25.jan 2016, 08:28
frá jongud
elliofur wrote:Hafa menn prufað sveitaaðferðir einsog tvöfalt hjólsagarblað í hjólsög með landi eða keðjusög? Maður hefur séð allskonar hillbilly video á youtube og margt virðist virka helvíti vel, sérstaklega svona multitool.
Og fullt fleira.
Ég var að vinna á tímabili í byggingavöruverslun og seldi einusinni náunga sem var að saga básamottur öflugustu hjólsögina sem ég gat komið höndum yfir. Þetta var einhver svakaleg græja sem fór létt með að taka steni, þykkar álplötur og þakjárn.
Hann bræddi úr henni eftir viku. Ég man ekki hvaða blöð gengu best hjá honum en gúmmí er bara svo djöfullegt dæmi til að vinna.
Re: Dekkjaskeri
Posted: 25.jan 2016, 16:49
frá ellisnorra
Vinur minn hringdi í mig áðan og var að segja mér að hann keypti gróftennt skurðarblað í slípirokk, sennilega eitthvað trésagardæmi. Kostaði 1900 kall í byko og hann var himinglaður með árangurinn, ekkert mál að skera með þessu og vann mátulega á þannig að hann þurfti ekkert land. Kaffibollinn í annari og slípirokkurinn í hinni. Áreynslulítið og ekkert vesen.
Re: Dekkjaskeri
Posted: 25.jan 2016, 17:56
frá biturk
Getur notað demantsblað fyrir stein í gúmmi með gôðum árangri:)
Re: Dekkjaskeri
Posted: 25.jan 2016, 21:27
frá juddi
Man ekki nákvæmlega verðið en ég pantaði hann frá UK og fékk að sleppa við VAT = vsk hér heima með því skilirði að ég borgaði með íslensku korti fékk þá svo til að senda á einn sem ég þekti úti og slapp þannig við flutning og tolla til íslands