Síða 1 af 1

Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2015, 08:09
frá sukkaturbo
Gleðileg Jól allir jeppavinr mín nær og fjær búið að vera yndislegt að skrifast á við ykkur alla.Ég vil þakka ykkur alveg afskaplega mikið fyrir svo afskalega lítið og hafið þið það sem allrabest.

Við reynum öll að gera eitthvað gott í kringum jólinn og ég valdi að hlúa að Suzuki nautasteikinni minn svo hún yrði góð síðar. Þessi saga er sönn
http://timarit.is/view_page_init.jsp?is ... glufir%F0i

Jóla góðverkið ógurlega

Sæl einu sinni bjargaði ég belju sem var með doða og gat hún engan vegin staðið upp og hefði dáið ef við hefðum ekki reyst hana á fætur.Þetta er ein mesta þyngd sem ég hef lyft á fjórum fótum eða um 500 kíló og ekki góða aðstaða básinn fullur af skít og vondar aðstæður til átaka. Beljan hafði veiktst og lá fyrir sem ekki er gott svo það þurfti að fá hana til að standa. Við settum talíu í loftið og net undir hana og langan kaðal út fyrir dyrnar. Þar vorum við með rússajeppa sem við ætluðum að nota til að draga hana á loft. Beljan fór svona 30 cm upp en þá spólaði jeppinn og hafði hana ekki það langt að hægt væri að hengja netið og beljuna í króka sem við vorum búnir að græja. Ég skreið undir kvikindið og byrjaði að lyfta eins ég mögulega gat til að hjálpa jeppanum en það var sama hvað ég streðaði að ekki náðist að hengja beljuna upp.Þegar ég tók sem mest á í lyftunni þá rak beljan alveg rosalega við þar sem ég þrýsti hraustlega á kviðinn á henni þegar ég lyfti henni. Ég sprakk úr hlátri og ætlaði að slaka á en þá rann jeppinn af stað og lenti ég með hausinn fastan undir beljunni þannig að kinnin og eyrað klemdist í drulluna og ætlaði ég aldrei að ná helvítis hausnum undan beljunni.En svo tókum við aðra törn og þá náðist að lyfta beljunni upp í krókana og þar hékk hún eins og jólaskrauta enda hét hún skrauta í nokkra klukkutíma. Innan tíðar jafnaði hún sig og varð verulega ástfanginn af mér og sleikti mig með sinni ógnar stóru tungu nærri upp úr skónum í þakklætis skyni. Því líkur sleikur allavega sá besti sem ég hef farið í hingað til. kveðja guðni

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2015, 09:27
frá karig
Takk sömuleiðis fyrir skemmtilega pistla, kv, Kári.

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2015, 13:41
frá jeepcj7
Gleðilega hátíð öll sömul og takk Guðni fyrir frábær innlegg.

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2015, 21:14
frá Járni
Vonandi hafið þið það rosa fínt núna og alltaf, jólakveðja!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2017, 15:31
frá bjornod
Skyldulestur á hverjum jólum!

Gleðileg jól enn á ný!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2017, 17:43
frá íbbi
gleðilega hátíð!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2017, 17:54
frá jeepcj7
Gleðileg jól öll hér

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2017, 23:27
frá Járni
Gleðileg jól! Vonandi hafið þið það sem best!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 25.des 2017, 07:49
frá sukkaturbo
Jamm jólin kæru vinir

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2018, 22:16
frá bjornod
Þessa sögu les ég á hverjum jólum!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 25.des 2018, 00:59
frá íbbi
gleðileg jól pungar!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 25.des 2018, 11:59
frá elli rmr
Gleðilega hátíð og endilega halltu skrifum áfram alltaf gaman að lesa eftri þíg hvort sem það er um belju eða jeppa og allt þar á mili :D

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 25.des 2018, 13:16
frá jeepcj7
Gleðilega hátíð öll.

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 25.des 2018, 14:30
frá petrolhead
Gleðilega hátíð allir spjallverjar.

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 26.des 2018, 09:32
frá karlguðna
Gleðilega hátíð allir hér, og takk fyrir fræðandi spjall og skemtilegt.
Kveðja Kalli og co

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 23.des 2019, 23:37
frá bjornod
Forskot á þessa sögu!

Gleðileg jól og kveðja á Siglufjörð!



P.s fleiri góðar sögur hér http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=9312&p=158835&hilit=L%C3%ADkamsr%C3%A6kt#p158835

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2021, 17:49
frá bjornod
Árleg áminning á góðar jólasögur frá meistara Guðna! Gleðileg jól!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 25.des 2021, 13:10
frá Kalli
Gleðilega hátíð jeppaspjallarar og sófaridarar

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 28.des 2021, 21:32
frá gislisveri
Gleðilega hátíð allir saman!

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 29.des 2021, 13:18
frá svarti sambo
Gleðilega hátíð allir/öll saman.

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 29.des 2021, 17:40
frá elli rmr
Gleðilega hátið jeppamenn og viðhengi :)

Re: Jólakveðja frá Hulk og Bellu

Posted: 24.des 2022, 17:30
frá bjornod
Af gömlum vana....hérna er hið eiginlega jólaguðnaspjall :)