Hvar er hægt að láta vigta jeppann


Höfundur þráðar
peturin
Innlegg: 159
Skráður: 28.mar 2010, 10:52
Fullt nafn: Pétur Ingjaldsson

Hvar er hægt að láta vigta jeppann

Postfrá peturin » 11.nóv 2015, 10:00

Hvar er hægt að láta vigta jeppann og fá vottorð fyrir vigtun á RVK svæðinu.




sigurdurhm
Innlegg: 27
Skráður: 22.nóv 2014, 13:32
Fullt nafn: Sigurður H Magnússon

Re: Hvar er hægt að láta vigta jeppann

Postfrá sigurdurhm » 11.nóv 2015, 10:11

Ég myndi prófa hafnarvog. Eða fá vigtun hjá Sorpu eða svipuðu fyrirtæki.

Það ætti að vera löggiltur vigtarmaður á þessum vogum sem hefur heimild til að vigta og gefa út vottorð.

Svo væri kannski gáfulegt að hafa samband við Samgöngustofu en skv. þeirra heimasíðu þarf að nota sérstakt eyðublað frá þeim.

http://www.samgongustofa.is/media/eydub ... unLOGO.pdf
http://www.samgongustofa.is/eydublod#

Kv. Sigurður

User avatar

AgnarBen
Innlegg: 884
Skráður: 10.mar 2010, 10:30
Fullt nafn: Agnar Benónýsson

Re: Hvar er hægt að láta vigta jeppann

Postfrá AgnarBen » 11.nóv 2015, 11:53

Ég hef fengið viktarseðil hjá voginni við malarvinnsluna við hliðina á BL (gamla Ingvar Helgason) og svo voginni niðrá Granda (er kannski búið að loka henni !). Einnig er vog í Hafnarfirði sunnan megin við höfnina við Óseyrarbraut.
Agnar Benónýsson

Jeep Cherokee 39,5"
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=7300


helgierl
Innlegg: 94
Skráður: 21.feb 2012, 20:56
Fullt nafn: Helgi Arngrímur Erlendsson

Re: Hvar er hægt að láta vigta jeppann

Postfrá helgierl » 11.nóv 2015, 18:21

Ég fór í Hringrás Klettagörðum í sumar til að fá vigtun á fellihýsi vegna breytingarskoðunar.

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Hvar er hægt að láta vigta jeppann

Postfrá Sævar Örn » 12.nóv 2015, 10:18

fínt að fara í hringrás í klettagörðum þar er skoðunarstöð við hliðina á sem tekur á öllum málum sem vigtarseðill kemur við :)
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 6 gestir