Síða 1 af 1

Bómu krani

Posted: 30.okt 2015, 14:54
frá sukkaturbo
Sælir félagar er farinn að gefa mig vegna aldurs og ofáts og nenni ekki að æfa mig lengur svo nú verð ég að fjárfesta í bómukrana sem getur leyst mig af við að lyfta vélum og gírkössum.Hvar fæ ég svona þarfaþing hann þarf að geta lyft svipað og ég gerði eða ekki minna en tveimur tonnum kveðja frá letihaugnum á sigló með von um úrlausn mála

Re: Bómu krani

Posted: 30.okt 2015, 17:09
frá juddi
Ef 2T er lágmark mundi ég fynna mér gamlan vörubíl með krana

Re: Bómu krani

Posted: 30.okt 2015, 19:31
frá Polar_Bear
Er ekki málið að fá sér lítinn hlaupakött

Re: Bómu krani

Posted: 30.okt 2015, 22:03
frá Raggi B.
Góði besti þú hefur smíðað svo margt að þú verður varla lengur en eina kaffipásu að græja einn svona :

Image

Re: Bómu krani

Posted: 30.okt 2015, 22:25
frá jeepcj7
Þessi er kannski ekki jafn öflugur og þú Guðni en þrælsniðugur samt er búinn að vera að spá í svona grip sjálfur.
http://www.eshop.is/fristundahus/VaraIn ... nCatID=349

Re: Bómu krani

Posted: 31.okt 2015, 00:19
frá sukkaturbo
jamm þessi er í áttina en spurning með þá sem fást í verkfæralagernum þeir eru á hjólum og lyfta 2 tonnum skilst mér. Spurning hvernig þeir endast

Re: Bómu krani

Posted: 31.okt 2015, 09:05
frá biturk
Hvað þarf hann að lyfta hátt?

Re: Bómu krani

Posted: 31.okt 2015, 12:33
frá sukkaturbo
Sæll Gunni bara upp á borðeða í vélarstand.þetta á að vera svona léttitæki