Síða 1 af 1

33" breyting á 120 Land Cruiser

Posted: 20.aug 2015, 22:00
frá steinarsig
Veit einhver nákvæmlega hvað er gert í 33 tommu breytingu á 120 Land Cruiser eins og gerð er hjá Arctic Trucks og annar hver bíll er með?

Skv. vefnum er 20mm hækkun og úrklipping að framan. Ég hef litið undir svona bíl með óbreyttan til hliðsjónar og sá hvergi hvað hafði verið klippt.

Hvernig ná þeir hækkuninni? Eru það klossar undir gorma?

http://www.arctictrucks.is/Forsida/Brey ... 20120/AT33

Re: 33" breyting á 120 Land Cruiser

Posted: 25.aug 2015, 23:56
frá steinarsig
Enginn sem veit?

Re: 33" breyting á 120 Land Cruiser

Posted: 26.aug 2015, 01:30
frá Valdi B
veit ekki en geri passlega ráð fyrir því að það séu bara upphækkunarkubbar settir ofan á gormana að aftan og ofan á coiloverið að framan. getur örugglega keypt þá í artic trucks . eða þá að það sé kannski bara sett 40 mm lift gormar í þá hringinn

Re: 33" breyting á 120 Land Cruiser

Posted: 27.aug 2015, 22:09
frá gislisveri
Þetta eru klossar eins og Valdi lýsir, því fylgir hjólastilling að framan. Úrklippan er óveruleg, bara eitthvað plastdót held ég.

Re: 33" breyting á 120 Land Cruiser

Posted: 27.aug 2015, 23:02
frá steinarsig
Takk fyrir svörin. Mig langar í svona 33 tommu bíl og er að velta því fyrir mér hvort breytingin sé einhvers virði.