Síða 1 af 1
Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 06.maí 2015, 19:35
frá gislisveri
Gott kvöld.
Mig vantar far fyrir eitt frekar nett mælaborð, rúðuþurrkuarm og kannski fleira smálegt til hans Guðna á Sigló. Þetta má líka enda á Akureyri eða einhversstaðar þar á milli.
Að launum er heiðurinn, handaband og jafnvel klapp á bakið.
Vinsamlega hafið samband í s.859-9450, eða í ES.
Kv.
Gísli.
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 06.maí 2015, 20:04
frá Svenni30
Veit um einn sem er að fara suður eftir helgina. Hann gæti kannski tekið þetta með. Skal heyra í honum.
Svona afþví að við klúruðum þessu um daginn :)
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 06.maí 2015, 22:52
frá gislisveri
Ég má ekki til þess hugsa að Guðni sitji þarna með hendur í skauti út af óáreiðanlegum sunnanmanni.
Takk Svenni, þú mátt endilega koma okkur í samband.
Kv.
Gísli.
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 06.maí 2015, 23:10
frá Svenni30
Geri það Gísli, læt hann bjalla á þig hann ferð norður á þriðjudaginn með hellings pláss
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 09.maí 2015, 20:02
frá sukkaturbo
Sæll Svenni og takk fyrir að reyna að redda fari. Ég var að eignast 4 38" dekk er einhver á ferðinni sem þú veist um sem gæti tekið það norður á Akureyrir eða Dalvík í næstu viku kveðja guðni
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 09.maí 2015, 21:58
frá solemio
fer norður a morgun,arskogssand,gæti skutlað þessu a dalvik.
kem þvi miður ekki dekkjunum með mer en mælaborðið og smotteri kemst með.
8922434.siggi
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 09.maí 2015, 23:14
frá sukkaturbo
sæll og takk fyrir það munar öllu næ í mælaborðið til svenna vinar kveðja guðni
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 09.maí 2015, 23:34
frá Svenni30
Ég get komið og sótt þetta á Árskógssand Siggi bjallaðu bara á mig 8610296 Kv Svenni
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 09.maí 2015, 23:36
frá Svenni30
Guðni ég skal spurja hvot það sé pláss fyrir dekkin en lofa engu
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 09.maí 2015, 23:59
frá solemio
munar engu að skutla þessu a dalvik,hringi i þig svenni þegar eg verð a ferðinni
kv.siggi
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 10.maí 2015, 22:02
frá gislisveri
Þetta stóð allt eins og stafur á bók og nú getur þú hætt að slóra Guðni!
Takk Sigurður og súkkukveðja,
Gísli.
Re: Vantar far til Siglufjarðar
Posted: 10.maí 2015, 22:16
frá sukkaturbo
Sælir félagar lof á ykkur Gísli -- Sigurður og Svenni sem kom með mælaborðið alla leið í skúrinn í kvöld því lík þjónusta hjá þessum herra mönnum. Já Gísli nú fer að styttast í skoðunn og mikið takk félagar fyrir snúningana. Býð ykkur upp á sigin fisk og hamsatólg þegar Bella verður skoðuð. Set allt á fullt á morgun.kveðja Guðni