að mála ál

User avatar

Höfundur þráðar
draugsii
Innlegg: 299
Skráður: 31.jan 2010, 23:01
Fullt nafn: Hilmar Ingimundarson
Bíltegund: Toyota Hilux 93
Staðsetning: Akureyri

að mála ál

Postfrá draugsii » 23.apr 2015, 23:18

Nú þarf að leita í gagnabankann hér á vefnum svo hér kemur spurning
hvernig er best að undirvinna ál fyrir málun?


1993 árg Toyota Hilux (hvaðan kemur þetta Hilux ??) 35 - 36"
22RE bensínrokkur (rétt dugar til að skila honum áfram á jafnsléttu)
kominn á 38” og með 22RTE sem er heldur snarpari en gamla og svo gafst hún upp og er kominn með
1kz-te
Kv Hilmar

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: að mála ál

Postfrá Tómas Þröstur » 24.apr 2015, 08:12

Svipað og venjulega held ég nema allavega einu sinni þá þurfti spes grunn á ál - kallað sýrugrunnur.


Sæfinnur
Innlegg: 103
Skráður: 24.apr 2013, 16:19
Fullt nafn: Stefán Gunnarsson
Bíltegund: CJ 7 360

Re: að mála ál

Postfrá Sæfinnur » 24.apr 2015, 09:05

Mér hefur reynst best að spjalla við sölumenn í þeim fyrirtækjum sem selja þær vörur sem maður er að spá í. Varðandi málningarvörur finnst mér best að leita ráða hjá Sérefni 517 0404. Strákarnir þar hafa verið liðlegir og góðir ráðgjafar.

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2490
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: að mála ál

Postfrá hobo » 24.apr 2015, 20:17

Ég mæli með viðloðunargrunni frá Rustolium, hálfgert klístur og loðir við allt. Fæst í Húsasmiðjunni.

Edit: Grunnurinn heitir Combi Primer,


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: að mála ál

Postfrá olei » 25.apr 2015, 00:43

Gamli góði Bit ætigrunnurinn loðir mjög vel við ál, ég mæli með þeim rauða sem mig minnir að sé ekki alveg sama stöffið og aðrir litir - svo undarlega sem það nú hljómar. Ég grunnaði með honum stórt gírkassahús úr áli nýverið og þar sem pensillinn skrapp yfir á fleti fyrir pakkingasæti var hreint ekkert grín að ná honum af. Það var bara slípivinna þó að pakkningasætin væru spegilfægð = fullkomin viðloðun.

Fyrir stál þarf að fara í ansi eitraðan tvegga þátta Epoxy grunn til að finna eitthvað sterkara, mér skilst að hann verji ál afar vel líka.

http://malning.is/wp-content/uploads/20 ... RUNNUR.pdf


Hrannifox
Innlegg: 374
Skráður: 19.sep 2011, 20:14
Fullt nafn: Hrannar Sigfússon
Bíltegund: Musso Sport 37''
Staðsetning: Hveragerði

Re: að mála ál

Postfrá Hrannifox » 26.apr 2015, 01:36

Pabbi var oft að sprauta landroverana í gamladaga þá notaði hann alltaf bit ætigrunn og þynnti hann út fyrir könnuna hann sagði að það væri það eina sem dugði á álið
Hranni Fúsa
Ssangyong Musso sport 37''
Jeep Grand Cherokee WJ

User avatar

Höfundur þráðar
draugsii
Innlegg: 299
Skráður: 31.jan 2010, 23:01
Fullt nafn: Hilmar Ingimundarson
Bíltegund: Toyota Hilux 93
Staðsetning: Akureyri

Re: að mála ál

Postfrá draugsii » 26.apr 2015, 01:58

ok þá notar maður bit grunn ef maður fer í að mála þetta
þakka svörin
1993 árg Toyota Hilux (hvaðan kemur þetta Hilux ??) 35 - 36"
22RE bensínrokkur (rétt dugar til að skila honum áfram á jafnsléttu)
kominn á 38” og með 22RTE sem er heldur snarpari en gamla og svo gafst hún upp og er kominn með
1kz-te
Kv Hilmar


Axi
Innlegg: 51
Skráður: 03.okt 2012, 23:05
Fullt nafn: Steingrímur Árni Thorsteinson
Bíltegund: TJ Wrangler
Staðsetning: 108 Reykjavík

Re: að mála ál

Postfrá Axi » 26.apr 2015, 22:59

Það er mjög mikilvægt að þurrka vel oxiteringarhúðina af álinu með td. sellulósaþynni áður en grunnað er til að tryggja góða viðloðun. Grunnun þarf svo að eiga sér stað innan 30 mínútna áður en húð nær að myndast aftur.


helgibj
Innlegg: 15
Skráður: 24.feb 2012, 13:17
Fullt nafn: Helgi Bjarnason
Bíltegund: Land Rover

Re: að mála ál

Postfrá helgibj » 03.maí 2015, 08:49

Sælir það er mikið atriði að matta álið og láta það ekki standa lengi bert og óvarið, heldur seta grunn strax á það. Mæli með að þú farir í Málningarvörur og kaupir Washprimer og setur eina þunna umferð af honum á, svo læturðu hann lofta í 15mín og svo seturu fylligrunn beint ofan á það.

kv Helgi

User avatar

Polar_Bear
Innlegg: 21
Skráður: 20.apr 2014, 11:49
Fullt nafn: Einir G. Kristjánsson
Bíltegund: Ford Econoline

Re: að mála ál

Postfrá Polar_Bear » 03.maí 2015, 11:29

Sýrugrunnur er málið
Viðhengi
IMG_0459.JPG
IMG_0459.JPG (129.9 KiB) Viewed 5151 time
IMG_0443.JPG
IMG_0443.JPG (94.62 KiB) Viewed 5152 times
Member Of The_Polarteam


villi58
Innlegg: 2134
Skráður: 10.maí 2011, 10:51
Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
Bíltegund: Toyota Hilux
Staðsetning: Ittoqqortoormiit

Re: að mála ál

Postfrá villi58 » 03.maí 2015, 12:18

helgibj wrote:Sælir það er mikið atriði að matta álið og láta það ekki standa lengi bert og óvarið, heldur seta grunn strax á það. Mæli með að þú farir í Málningarvörur og kaupir Washprimer og setur eina þunna umferð af honum á, svo læturðu hann lofta í 15mín og svo seturu fylligrunn beint ofan á það.

kv Helgi

Þarna er það rétta í grunnun á áli, svipað með suðu á áli þar sem þarf að pússa eða fara með vírbusta á ef líður meira en c.a. 1/2 klst. á milli suða.
Þetta er haft eftir manni sem hefur tugi ára í meðhöndlun áls og hef ég farið eftir því.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 29 gestir