Síða 1 af 1

Hilux-4Runner Framljós

Posted: 24.mar 2015, 20:36
frá Hlynurn
Jæja, nú er annað framljósið á Hilux hjá mér ónýtt, fór og verslaði mér inn ljós úr 4runner af sömu árgerð haldandi að það væru sömu ljósin.
Image
Munurinn sést á þessari mynd... spurningin er, get ég látið þessi ljós ganga í hiluxinn með því að fá mér rétt grill eða þarf ég að skipta einhverju fleira út til að láta þetta virka?

kv. Hlynur

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 24.mar 2015, 21:46
frá Hlynurn
Eða ef einhver á Framljós sem passar í þetta á skynsamlegu verði þá væri ég allveg til í að kaupa það og sleppa því að standa í einhverju brasi við að mixa þetta.

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 24.mar 2015, 21:52
frá haffiamp
þú ert með facelift ljós af 4runner sem kemur 93 frekar en 94 en hiluxinn breytist seinna, þú þarft að fá restina af framendanum af 4runner til að láta þetta ganga, grill og ljósaramma og kannski fleira smotteri, en allt passar þetta, margir sem breyta þessu til að "yngja upp" bílana

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 24.mar 2015, 22:47
frá Atli E
Hilux kom aldrei með þessum ljósum.
4runner kom með þessi ljós á 1992 árg. og var með þau þar til 3.gen kom 1996.

Ef þessi ljós eiga að fara á Hilux, þá þarf að skipta um svuntu, stuðara, stefnuljós, stöðuljós og grindina sem ljósin falla í.
Að auku þar að mixa smá boddýið á bakvið grill og ljós svo þetta hangi nú allt á réttum stað :)

Kv. Atli E.

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 24.mar 2015, 23:05
frá Valdi 27
Ég keypti aðalljós í hiluxinn hjá mér sem er 90árg í Toyotu fyrir einhvern 12þús kall. Var það bara í desember síðastliðnum.

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 24.mar 2015, 23:14
frá Hlynurn
Jæja, ég ælta nú ekki að fara kaupa slatta meira til að láta þessi ljós passa, keypti þetta í þeirri trú að Hilux og 4runner framendarnir væru eins. mín mistök og nú er bara að reyna selja þessi ljós og fá rétt í þetta.

Þakka svörin

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 24.mar 2015, 23:57
frá Hjalliboy
Sæll

Ég á ljós handa þér ef þú hefur áhuga.

Kv. Hjalli

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 25.mar 2015, 00:35
frá Hlynurn
síminn hjá mér er 6954030, endilega heyrðu í mér með þetta Hjalli.
verð vakandi eitthvað frameftir svo þú getur hringt í kvöld eða eftir hádegi á morgunn.

Kv, Hlynur

Re: Hilux-4Runner Framljós

Posted: 25.mar 2015, 10:20
frá Atli E
Ljósin í hilux eru bara standard ljós sem voru á öðum hvorum bíl á þessum áðrum.
Ný svona ljós ættur að kosta slikk á ebay eða í þessum bílavarahlutabúðum hér heima :)

Ljósin sem þú ert með hinsvegare eru sér 4Runner ljós og passa bara á 4Runner.