Síða 1 af 1

Fóðringar í þverstífu að framan (vantar uppl)

Posted: 17.mar 2015, 12:28
frá atte
Sælir félagar nú var ég að fara að skipta um þverstífufóðringar að framan í Pattanum hjá mér og þá er búið að svera þetta upp
og hef ég ekki hugmynd um úr hverju þetta kemur en málin á fóðringunum er 18x40 og svo 46mm á lengd mér datt
helst í hug að þetta væri undan 80 Cruiser og hringdi í Toyota og málin sem þeir gáfu mér upp eru 18x40x50.
Þannig að nú er maður strand.

Ef þið hafið hugmynd úr hverju þetta gæti verið þá er öll hjálp vel þegin með fyrirfram þökk
kv Theodór

Re: Fóðringar í þverstífu að framan (vantar uppl)

Posted: 17.mar 2015, 12:55
frá Hjörturinn
Getur prufað að fara með fóðringuna niðrí stál og stansa, þeir eiga slatta af þessu, gætu mátað þína við

Re: Fóðringar í þverstífu að framan (vantar uppl)

Posted: 17.mar 2015, 14:14
frá Kiddi
Er þetta ekki bara Cruiser fóðring sem búið er að slípa 2 mm af hvoru megin?

Re: Fóðringar í þverstífu að framan (vantar uppl)

Posted: 17.mar 2015, 19:51
frá atte
Komið hefur í ljós að þetta eru Lc 80 fóðringar, takk fyrir aðstoðina



Kv Theodór