Síða 1 af 1
					
				Þurkur í Nissan Terrano II 1998
				Posted: 23.feb 2015, 22:39
				frá jonkari
				Sælir félagar !
Veit nokkur hvar ég get fengið nýjar fóðringar í þurkur á Nissan Terrano ? Það er greinilega komið talsvert slit í þær.
Mkb.
-Jón Kári.
			 
			
					
				Re: Þurkur í Nissan Terrano II 1998
				Posted: 24.feb 2015, 10:00
				frá Freyr
				Umboðinu, færð þurrkuspindlana staka á viðráðanlegu verði.
			 
			
					
				Re: Þurkur í Nissan Terrano II 1998
				Posted: 24.feb 2015, 13:28
				frá svarti sambo
				Mig minnir að ég hafi borgað ca: 26.000 kr fyrir spindilinn í umboðinu, fyrir ca: þremur árum. Kostuðu báðir rúm 50.000kr. En það var alveg þess virði og losna við helv. ískrið í þessu. Kannaði svo sem aldrei aðra staði, en það er spurning hvort að bílanaust sé með þetta og sambærilegar verslanir. Stál og stansar eru með dót í hjólabúnaðinn, en ég veit ekki hvort að þeir séu með eitthvað fleira.
			 
			
					
				Re: Þurkur í Nissan Terrano II 1998
				Posted: 24.feb 2015, 13:58
				frá Axi
				Ég renndi þetta bara út og fóðraði þetta upp í bílnum hjá mér. 3 ár síðan og ennþá í fínu standi.
			 
			
					
				Re: Þurkur í Nissan Terrano II 1998
				Posted: 24.feb 2015, 14:38
				frá Freyr
				svarti sambo wrote:Mig minnir að ég hafi borgað ca: 26.000 kr fyrir spindilinn í umboðinu, fyrir ca: þremur árum. Kostuðu báðir rúm 50.000kr. En það var alveg þess virði og losna við helv. ískrið í þessu. Kannaði svo sem aldrei aðra staði, en það er spurning hvort að bílanaust sé með þetta og sambærilegar verslanir. Stál og stansar eru með dót í hjólabúnaðinn, en ég veit ekki hvort að þeir séu með eitthvað fleira.
Mig minnir að ég hafi borgað inann við 10.000 kr. fyrir þurrkuspindil í minn sem var '98 árgerð.
 
			
					
				Re: Þurkur í Nissan Terrano II 1998
				Posted: 24.feb 2015, 16:02
				frá svarti sambo
				Freyr wrote:svarti sambo wrote:Mig minnir að ég hafi borgað ca: 26.000 kr fyrir spindilinn í umboðinu, fyrir ca: þremur árum. Kostuðu báðir rúm 50.000kr. En það var alveg þess virði og losna við helv. ískrið í þessu. Kannaði svo sem aldrei aðra staði, en það er spurning hvort að bílanaust sé með þetta og sambærilegar verslanir. Stál og stansar eru með dót í hjólabúnaðinn, en ég veit ekki hvort að þeir séu með eitthvað fleira.
Mig minnir að ég hafi borgað inann við 10.000 kr. fyrir þurrkuspindil í minn sem var '98 árgerð.
 
Þeir hafa kannski átt að sejast í setti á 26.000 kr, en verið seldir stakir. Allavega fannst mér þetta ekki ódýrt, en ég nennti ekki að renna nýjar fóðringar og svoleiðis mix og hafði engan tíma í það og fór bara og verslaði þetta, þar sem að ískrið var að gera mig brálaðann og þetta gjögti í allar áttir.