Síða 1 af 1
Miðstöð í pallhús ?
Posted: 22.feb 2015, 22:43
frá Hilux35
Sælir/sælar.
Ég er að velta fyrir mér að koma á miðstöð, túðu eða einhverju sambærilegu aftur í pallhús á hilux. Er með hund og einnig til að losna við raka o.s.frv.
Er einhver hér sem hefur farið í slíkt verkefni og gæti bent mér á einhverjar sniðugar lausnir?
Kv.
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 22.feb 2015, 23:03
frá svarti sambo
Held að það sé ódýrasta lausnin að fá sér vatnsmiðstöð hjá bílasmiðnum og græja hana aftur á pall.
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 23.feb 2015, 00:10
frá HummerH3
Géturðu ekki haft einhverja kéllingu á pallinum?
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 23.feb 2015, 21:53
frá elli rmr
Sumir hafa tengd útöndunina aftan af húsinu yfir á pallinn með góðum árangri er mér sagt
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 23.feb 2015, 22:08
frá IL2
Ég setti barka á milli húsins og pallsins. Þar var ég með littla 120mm viftu úr tölvu sem blés inn á pallin. Það varð svo sem aldrei neitt heitt þar en mun minni raki í húsinu en áður.
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 23.feb 2015, 22:16
frá Stjóni
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 23.feb 2015, 22:53
frá Hilux35
Takk fyrir góðar ábendingar.
skelli inn myndum þegar þetta er klárt.
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 23.feb 2015, 23:14
frá crusi100
Sæll.
Tekur gat á milli húss og palls aftan við bakið á aftursætinu. Helst 4" fyrir rör eða barka. Hafa gatið rúmt og kítta vel með því til þess að mæta hreifingu sem er á milli palls og húss. Tekur klæðninguna sem er vinstra megin við sætið að aftan frá og límir fyrir útöndunina(ristina) á húsinu sem er þar fyrir innan þannig að heita loftið sem kemur inní bílinn(miðstöðina að framan) fari aftur fyrir sætið´og inní pallhúsið. Setur loftun eða útöndun á pallhúsið t.d 2 tveggja tommu hné sem snú niður til þess fyribyggja að vatn komist inn. Þessi aðgerð geri það að verkum að hitinn í pallhúsinu verður frá 0-10-15 gráður í plús í frosti. Með þessari aðgerð færðu góðan strók aftur í pallhúsið án viftu. Miðstöðvarviftan sér um blásturinn.
Kveðja OÖ.
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 25.feb 2015, 08:26
frá 303hjalli
crusi100 wrote:Sæll.

Á til snúningsviftu ofan á húsið ,og opnar á milli eins og,,crusi100" segir,....!s-5871099-8943765.
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 25.feb 2015, 11:25
frá Halldorfs
Ég á miðstöð sem var á milli sætana í 4runner. Lítil og nett sem blæs ágætlega mikið, tengd við vatnskerfið í bílnum.
Re: Miðstöð í pallhús ?
Posted: 16.des 2015, 15:41
frá gudmundurp
Þetta er aðeins orðið gamalt, en hvernig, eða hvar fara menn inn á kælivatnið ? Verður öll hringrásin að fara í gegn um pallinn, eða er hægt að setja 2 T stykki , verður þá nokkuð rennsli í gegn um þá slaufu ? Meina ef þetta er nokkurnveginn tengt eins og 8.
Pælingin er sumsé hvort það þurfi að taka 2" slöngu frá vatskassa og alla leið aftur á pall og fram aftur, eða hvaða leið menn eru að fara.