Síða 1 af 1
39.5" dekk
Posted: 17.feb 2015, 00:59
frá surtur87
Sælir getur eithver sagt mér reynslu af 39.5" dekkjum og hverjir eru að selja þessi dekk
Re: 39.5" dekk
Posted: 17.feb 2015, 09:00
frá saevars
var með 39.5 irok undir wrangler og var rosalega ánægður með þau . en held að n1 séu með irokin núna
Re: 39.5" dekk
Posted: 17.feb 2015, 16:01
frá Fordinn
Ef þú ert að hugsa þetta undir léttan bíl þá gætiru prófað þetta.... enn í mínum augum er þetta eitt mesta drasl sem ég hef komist i tæri við.... hvell springandi undir þyngri bílum þótt aldrei hafi verið hleypt úr þeim.... félagi minn keypti þetta drasl líka gegn mínum ráðum og þegar hann var buinn að kaupa 2 ný dekk í viðbót við þessi 4 fyrstu, og ekki buið að keyra bilinn 5000 km á þeim þá fékk hann sér 42" irok. N1 er ekki að standa sig í þjónustunni þegar eitthvað svona kemur uppá.
að því sögðu þá eru þetta bestu dekk sem eg hef keyrt á í hálku, voru micro skorin hjá mér.
Enn ég hef bara ekki tíma né peninga til að eyða í svona rusl svo eg mun ekki nota þetta aftur.
Re: 39.5" dekk
Posted: 17.feb 2015, 21:31
frá kubburnr1
Hvað eru þyngdartakmörk fyrir þessi dekk, sem sé hvað bílar eru of þungir er hilux og tacoma of þungir ?
Re: 39.5" dekk
Posted: 17.feb 2015, 21:48
frá Fordinn
Miðað við hvað ég hef séð og heyrt þá virðast jeppar undir 2 tonnum sleppa á þeim... og ef það á að hleypa úr hafa menn skorið þau vel til.
Þess má geta að ég ath það fyrst hjá N1 þegar eg keypti dekkin hvort þau bæru bílinn hjá mér, 3,5 tonn pikkup. og það áttu þau að gera leikandi. Og það segir sig sjalft að 3,5 tonna bill flytur ekki á þessu svo það var aldrei hleypt úr þessu... fljotlega fór að bera á sprungum sem bara stækkuðu, á endanum hvell sprakk á bílnum á reykjanesbrautinni.
Félagi minn lennti i svipuðu veseni og keypti nytt dekk og þá var honum ráðlagt að pumpa bara meira í þau,,, man ekki hvað hann var látinn setja mikið í þau enn það var sennilega max þrystingur.. og stuttu seinna keyrði hann yfir stein á sprengisandsleið sem lá grafinn niður i veginn sjalfan og hann risti hreinlega dekkið upp i miðju munstrinu.
Sá bill viktar svipað og minn. og ennþá eru sauðirnir hjá N1 að selja mönnum þetta rusl undir stærri bílana.
Re: 39.5" dekk
Posted: 17.feb 2015, 23:15
frá AgnarBen
Frábær dekk undir létta bíla, er búinn að vera með mín 39,5" Irok undir Cherokee XJ í 4 ár og ekkert vesen og búinn að hleypa úr þessu hægri og vinstri niður í ekki neitt.
Tek það þó fram að ég hef passað mjög vel upp á þau, þau eru fljót að hitna og setti því úrhleypibúnað og hika ekki við að pumpa í um leið og ég kemst á harðara undirlag. Hef fundið þau volgna undir mínum í 4 psi á möl og harðfenni. Held að það versta sem menn gera við þessi dekk sé að mýkja þau of mikið á möl og örugglega búið að eyðileggja mikið af þessum dekkjum undir þyngri bílum þannig.
Re: 39.5" dekk
Posted: 18.feb 2015, 01:45
frá thorjon
Búinn að vera með þetta undir 3 tonna Y61 Patrol í 2 ár og engin vandræði. Passa mig bara á hvaða þrýsting ég er í miðað við undirlag. Frábær akstursdekk ( hoppa ekki út um allt eins og 44 DC) en eflaust hægt að finna betri dekk fyrir extreme aðstæður.
Ég ákvað að skella mér á þessar túttur því ég ek eflaust 80% á malbiki..... Segjandi það, hvað eru menn að aka marga km á malbiki versus óbyggðum þótt bílarnir séu "eingöngu" notaðir offroad ?? tekur alltaf amk 100 km að komast offroad ef þú býrð í "borg óttans" og svo er rúntað nokkur hundruð km á malarslóðum etc ;)
Re: 39.5" dekk
Posted: 20.feb 2015, 18:02
frá Óttar
í mínum augum er þetta eitt mesta drasl sem ég hef komist i tæri við.... hvell springandi undir þyngri bílum þótt aldrei hafi verið hleypt úr þeim.... félagi minn keypti þetta drasl líka gegn mínum ráðum og þegar hann var buinn að kaupa 2 ný dekk í viðbót við þessi 4 fyrstu, og ekki buið að keyra bilinn 5000 km á þeim þá fékk hann sér 42" irok.
Á þetta bara við um radial dekkið, bara irok eða á þetta við um öll super swamper dekk?
kv Óttar
Re: 39.5" dekk
Posted: 20.feb 2015, 18:27
frá Fordinn
Óttar wrote:í mínum augum er þetta eitt mesta drasl sem ég hef komist i tæri við.... hvell springandi undir þyngri bílum þótt aldrei hafi verið hleypt úr þeim.... félagi minn keypti þetta drasl líka gegn mínum ráðum og þegar hann var buinn að kaupa 2 ný dekk í viðbót við þessi 4 fyrstu, og ekki buið að keyra bilinn 5000 km á þeim þá fékk hann sér 42" irok.
Á þetta bara við um radial dekkið, bara irok eða á þetta við um öll super swamper dekk?
kv Óttar
Óttar eftir mínu besta viti eru þetta bara þessi 39,5" dekk sem hafa látið svona.