Síða 1 af 1

38" Dekk ?

Posted: 15.feb 2015, 07:53
frá bjsam
Góðan daginn, hvar er best að láta umfelga og líma ef með þarf 38" dekk á felgur hér á Rvk. svæðinu ? . Kv.Bjarni

Re: 38" Dekk ?

Posted: 17.feb 2015, 16:13
frá haffiamp
Nýbúinn að kanna þetta, benni og arctic trucks voru ódýrastir í umfelgun, var um 16 kall

Re: 38" Dekk ?

Posted: 17.feb 2015, 16:46
frá hobo
Myndi kanna með Nýbarða í Garðabæ, þeir eru mjög sanngjarnir.
Þegar ég lét þá umfelga fyrir mig 38" dekk og líma, kostaði það 11 þús. Þetta var reyndar fyrir að verða 4 árum.

Re: 38" Dekk ?

Posted: 17.feb 2015, 20:38
frá haffiamp
Benni á Nýbarða í dag svo að verðin gætu hafa hækkað...

Re: 38" Dekk ?

Posted: 17.feb 2015, 22:01
frá fridfinnur
Ég held að ég hafi borgað hátt í þetta bara ballaniseringu og víksla dekkjum hjá N1

Re: 38" Dekk ?

Posted: 18.feb 2015, 09:11
frá aae
lét ballansera 2 stk 44" dekk hjá N1 um daginn og kostaði 6600 með afslætti.
Listaverðið var 4000 á stk! Hafði ekki tíma til að fara annað en þarna fer ég aldrei aftur..
ath að þetta var bara að ballansera ekki umfelga.
Annars hef ég oft farið á Nýbarða, fín þjónusta og sangjarnt verð en þeir ballansera ekki stærri dekkin lengur..

Re: 38" Dekk ?

Posted: 18.feb 2015, 10:20
frá ivar
Já, ég bað n1 um að endur-balancera 46" dekk á felgum sem ég kom með í kerru til að bæta balanceringuna fyrir veturinn.
Þeir voru tilbúnir að gera það fyrir tæpar 30.000kr.
Ég ákvað að sleppa því að taka því kostaboði og fór í sólningu sem að gerðu þetta fyrir að mig minnir 11þ.

N1 er alveg að drulla uppá bak í verðlagningu á þjónustu

Síðast þegar ég verslaði við þá var það að balancera 1x 41" dekk sem var undir bíl. Var um 6þ minnir mig og voru 3 liðir á reikningnum. Taka dekk af, balancera og setja dekk á.