Síða 1 af 1
					
				Lc 70 vandræði
				Posted: 09.feb 2015, 12:25
				frá villi
				Daginn, er í vandræðum með 70 krúser sem  liggur nánast á samsláttarpúða vinstrameginn að framan þrátt fyrir að vera kominn á nýja framgorma. Hvar dettur mönnum í hug að vandamálið liggi
Kv Villi
			 
			
					
				Re: Lc 70 vandræði
				Posted: 09.feb 2015, 12:28
				frá mikki
				gæti verið einhvað að gormum að aftan ?
			 
			
					
				Re: Lc 70 vandræði
				Posted: 09.feb 2015, 12:44
				frá villi
				Já, okkur er búið að detta það í hug en nú er hann bara nokkuð eðlilegur þar
			 
			
					
				Re: Lc 70 vandræði
				Posted: 09.feb 2015, 12:47
				frá sukkaturbo
				skoða grindina
			 
			
					
				Re: Lc 70 vandræði
				Posted: 09.feb 2015, 20:27
				frá haffij
				Er þessi bíll ekki með hægri og vinstri gorm? Gæti það hafa skolast eitthvað til hjá ykkur?
Ef marka má þetta virðist vera sitthvort partanúmerið á orginal gormunum.
http://www.megazip.ru/zapchasti-dlya-av ... k-absorber 
			
					
				Re: Lc 70 vandræði
				Posted: 10.feb 2015, 13:15
				frá villi58
				Í gömlum Hilux eru fjaðrirnar merktar L og R væri ekkert ótrúlegt að gormarnir væru líka þannig. Mesta notkun er bara bílstjórinn og þar er ástæðan.
			 
			
					
				Re: Lc 70 vandræði
				Posted: 10.feb 2015, 17:18
				frá villi
				Takk fyrir, næsta skref er að rannsaka gormana
			 
			
					
				Re: Lc 70 vandræði
				Posted: 10.feb 2015, 21:10
				frá Navigatoramadeus
				villi58 wrote:Í gömlum Hilux eru fjaðrirnar merktar L og R væri ekkert ótrúlegt að gormarnir væru líka þannig. Mesta notkun er bara bílstjórinn og þar er ástæðan.
ástæðan er vatnshalli uppá ca 5 gráður á vegunum, ekki að allir vegir séu skapaðir jafnir en eiga víst að vera jafn"skakkir".
svo er hérna skemmtileg lesning fyrir suma; 
http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Fil ... aleida.pdfforvitnilegt fannst mér að niðurbrotsáhrif milli öxulþunga eru ekki línuleg heldur í fjórða veldi, er munurinn á niðurbrotsáhrifum á 11,5 tonna öxulþunga og 10 tonna öxulþunga LEF = (11,5/10)4 = 1,75 sinnum meiri.
munur á 10 og 15 tonna öxulþunga er þá LEF = (20/10)4 = 16 sinnum meiri.  (bls. 38-39)