Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
-
- Innlegg: 2627
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
Eitt ráð er að kaupa ryðfría ventla, ég hef séð slíka á Ebay og hjá Summit racing. Þessir sem þú ert með virðast bara vera krómaðir, eða allavega skinnan. Þú gætir e.t.v. skipt ryðguðu skinnuni út fyrir aðra ryðfría.
-
- Innlegg: 269
- Skráður: 21.jan 2012, 22:15
- Fullt nafn: Hafþór Ægir Þórsson
- Bíltegund: Terrano II 36"
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
En bara gúmmíventla sem flestir eru með ?
-
- Innlegg: 971
- Skráður: 26.maí 2012, 10:42
- Fullt nafn: Gunnar Þórólfsson
- Bíltegund: Daihatsu feroza
- Staðsetning: Akureyri
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
Þetta eru margfalt sterkari ventlar
Við erum með n1 ventla hjâ gúmmívinnslunni og ég hef aldrei séð þá ryðga svona, setti í mínar felgur eins og eru hjá þér
Við erum með n1 ventla hjâ gúmmívinnslunni og ég hef aldrei séð þá ryðga svona, setti í mínar felgur eins og eru hjá þér
head over to IKEA and assemble a sense of humor
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
Sennilega krómið að valda spennutæringu. Plastskinna væri kannski best. Ryðfrítt gæti bara fært vandamálið.
Kveðja
Grímur
Kveðja
Grímur
-
- Innlegg: 269
- Skráður: 21.jan 2012, 22:15
- Fullt nafn: Hafþór Ægir Þórsson
- Bíltegund: Terrano II 36"
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
Svona ventill hefur bognað hjá mér og farið að leka,, fékk líklega grjót / klaka í felguna... er búinn að vera með gúmmíventla í mörg ár
-
- Innlegg: 690
- Skráður: 01.feb 2010, 08:29
- Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
- Bíltegund: Toyota
- Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
- Hafa samband:
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
Mér var ráðlagt af dekkjaverkstæði að skipta þessum skinnum út fyrir rústfríar..... man líka eftir einhverju dekkjaverkstæði sem ég fór einusinni á þá gerður þeir það óumbeðið að setja rústfríar skinnur í staðin fyrir það sem fylgir með.
-
- Innlegg: 1270
- Skráður: 15.okt 2013, 19:45
- Fullt nafn: Elías Róbertsson
- Bíltegund: F350 38,5"
- Staðsetning: Ólafsvík
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
Mæli frekar með crhome húðuðum kopar skinnum, frekar en að setja riðfríar skinnur, vegna spennumunar á milli efna. Örugglega hægt að fá þær í þessum fjarskifta verslunum. Og kannski víðar. Ef menn nota riðfríar skinnur, þá myndi borga sig að setja svona asbest þéttingu undir skinnuna, til að einangra málmana frá hvor öðrum. Eða eitthvað sambærilegt.
Fer það á þrjóskunni
Re: Hvar fæ ég dekkjaventla sem verða ekki svona eftir mánuð!
Þú færð gúmíventla á öllum dekkjaverkstæðum. Mín þáttaka í fjallaferðum hófst 1986 og ég man ekki eftir neinu tilviki þar sem þeir hafa verið til vandræða. Þeir eru vissulega ekki eins smart og svona ventlar nýir, en það er líka eini kosturinn sem þessir hafa framyfir.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 56 gestir