Síða 1 af 1

Hvaða turbínur í Halux

Posted: 20.jan 2015, 23:33
frá RofustöppuRobbi
Sælir úr hvernig bílum hafa menn verið að mixa turbinur í 2,4 disel Hilux ?

Re: Hvaða turbínur í Hilux

Posted: 20.jan 2015, 23:51
frá RofustöppuRobbi
Hvaða turbinur hafa menn verið að mixa í 2,4 disel Hilux..

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 20.jan 2015, 23:58
frá Valdi B
ég held það hafi nú bara ekki verið mikið um þau mix hér á landi, það er líka spurning, hvort þú ert aðleita eftir smá aflbætingu (þá er bara fínt að finna 2lt bínu og grein og setja á 2l mótorinn (2l er 2.4 non turbo og 2lt er 2.4 turbo) en ég held að það skásta til að fá afl útúr 2l sé að finna variable vane túrbínu minnir mig að það kallist, sem er með rafmagns wastegate (endilega leiðrétta mig ef ég fer með rangt mál) en þú finnur svoleiðis bínur í nýlegum rangeroverum eða land roverum. held ég hafi lesið eitthversstaðar að það sé líka svona í pathfinder/navara nýlegum og örugglega fullt af öðrum tegundum af ökutækjum. en já finna svoleiðis bínu og smíða pústgrein og svo hafa púst nógu opið og setja intercooler og afgashitamælir til að geta stillt olíu á móti lofti vel.

mér hefur alltaf langað að reyna að finna afl í 2.4 og vonandi verður eitthvað úr því eitthverntímann :)

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 21.jan 2015, 08:45
frá villi58
Hef notað Swithser og Garrett túrbínur í Hilux no turbo, þarf að passa stærð á hjólum í túrbínum.
Svo CT 20 Toyota sem ætti að vera nothæf. CT 25 örugglega líka, svolítið snúið hvað passar best.

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 21.jan 2015, 14:20
frá jeepcj7
Það var nokkuð algengt að nota túrbínu úr Subaru 1800 og úr Saab í 2.4 diesel hér áður þegar minna var um túrbínur í bílum en í dag er þetta út um allt og örugglega lítið mál að nota úr öðrum svipuðum dísil bílum td. Pajero,L200 og Galloper sem mikið er til af.

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 21.jan 2015, 16:12
frá Bskati
ég var með nokkrar í gamla mínum

IHI (úr subaru 1800)
Garrett T25
Garrett T28 (minnir mig, var ættuð úr saab 9000)

Ég kunni eiginlega best við bíllinn með IHI bínunni, en hún ég tók hana úr þar sem afgashúsið á henni brotnaði. Mig langaði alltaf að prófa IHI bínu úr GT impressu, mér skildist að þær væru betri á hærra boosti.

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 21.jan 2015, 17:05
frá sukkaturbo
ég hef notað Isusu túrbínur og þær virka mjög vel

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 21.jan 2015, 23:14
frá RofustöppuRobbi
Ég var að gæla við að nota eittvað af túrbinum sem ég á til t.d úr patrol 2.8 eða Terrano 2.7 Terracan 3.0 Langar að prufa 2.8 patrol túrbo ?

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 21.jan 2015, 23:33
frá jeepcj7
Sú reynsla sem ég hef af turbo brasi er að ef túrbínan kemur af stærri vél þá kemur hún frekar seint inn á minni vél sem er frekar súrt og þegar hún kemur líka af vél sem snýst talsvert meira er líklega ekki von á góðu afli.

Re: Hvaða turbínur í Halux

Posted: 22.jan 2015, 00:42
frá RofustöppuRobbi
Já það er víst þannig.. ég setti einusinni straumsvíkur túrbínu eins og þær voru kallaðar, komu úr 3,0L Ford Traktor, setti hana á 2.8 Nissan Larel sem var ofaní Willys, blés ca 13-14 psi og það virkaði djöfull vel :)