Síða 1 af 1
loftdælur?
Posted: 19.jan 2015, 18:33
frá hannibal lekter
hverju mæla menn með er að leita að dælu til að setja í gamla hilux sem er á 38"
Re: loftdælur?
Posted: 19.jan 2015, 22:47
frá Aparass
Fini. Þarft ekkert að leita neitt meira eftir að þú ert búinn að kaupa þér svoleiðis og ert alltaf sáttur.
Re: loftdælur?
Posted: 19.jan 2015, 22:56
frá haffiamp
fini er bara of dýr þó hún endist eitthvað.... kostar á milli 70 og 80 þúsund...
ég myndi tala við Tryggva í stýrivélaþjónustunni, hann er að selja góðar dælur með sömu afköst og fini á 25-30 kall (man ekki alveg)
þekki tvo sem hafa keypt hjá honum og þeir eru fanta kátir með þær, báðir á 38"
Re: loftdælur?
Posted: 19.jan 2015, 23:25
frá kjartanbj
Reimdrifna dælu..
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 07:45
frá 303hjalli
Á til reimdrifnar dælur 10 -12þús. Notaðar nýjar 25þús. S-5871099-8943765
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 08:31
frá Sævar Örn
Sammála, mæli með reimdrifinni dælu, yfirleitt gott að koma þeim fyrir, dælas mjög miklu, alveg hljóðlausar,
þoli ekki hávaðann í rafmagnsdælum sérstaklega þegar búið er að festa þær í bíla
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 11:07
frá raggos
eru einhverjir aðilar sem eru góðir í að koma þessum reimdrifnu fyrir í vélum? Ég mikla það svolítið fyrir mér að vera að búa til festingar fyrir dæluna og álíka.
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 12:19
frá jongud
raggos wrote:eru einhverjir aðilar sem eru góðir í að koma þessum reimdrifnu fyrir í vélum? Ég mikla það svolítið fyrir mér að vera að búa til festingar fyrir dæluna og álíka.
Það er lang auðveldast að nota "original" festingar fyrir A/C dælu og breyta einni svoleiðis í loftdælu. Þá er líka minna vesen með að finna réttu reimina.
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 13:34
frá Hagalín
Nardi dælurnar sem fást í Verkfærasölunni og Landvélum hafa komið mjög vel út einnig.
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 19:02
frá rauðhaus
haffiamp wrote:fini er bara of dýr þó hún endist eitthvað.... kostar á milli 70 og 80 þúsund...
ég myndi tala við Tryggva í stýrivélaþjónustunni, hann er að selja góðar dælur með sömu afköst og fini á 25-30 kall (man ekki alveg)
þekki tvo sem hafa keypt hjá honum og þeir eru fanta kátir með þær, báðir á 38"
http://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R4 ... 3&_sacat=0Verslaði mér svona dælu á ebay. Komin til mín á rétt undir 28.þúsund og hún er mikið sneggri að dæla en þessar 2 stimpla dælur sem maður fær í bílanaust og stillingu. Átti eina svoleiðis og var mjög sáttur þegar ég var búin að bora hana út og smyrja.
En seglarnir inni í húsinu þoldu ekki víbringin eftir að ég boltaði hana á pallinn, þó að gúmí væri undir, og þeir brotnuðu í marga parta. Tek á mig þá sök 100%. Ef maður hugsar vel um þá dælu eru þær býsna góðar en ef maður vill vandaða vöru þá er t-max eins og þær sem maður fær annað hvort í bílabúð benna eða hjá stýrivélaþj. eða ebay þrusu græja. Mín var 1:40 mín að dæla úr 3 upp í 15 psi í 38" þar sem hin var orginal 3:15 og eftir skveringu 2:20. En þessar mælingar eru að sjálfsögðu eftir að búið er að henda þessum gormaslöngum og 6mm slanga kominn í staðinn. Veit að t-max kostaði síðasta sumar um 36.þúsund hjá bílabúð benna og ég held án þess að hafa kynnt mér það að þetta verð sem gefið er upp á netsíðu stýrivélaþj. hljóti að vera gamallt.
http://www.styri.is/vorur/spil/ Ég mæli með þessum dælum:) Og já hún hitnaði nánast ekki neitt við að dæla í 4 dekk.
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 19:59
frá Haffi
Mæli með dælunni í stýrivélaþjónustunni, rosa góð afköst um leið og þú ert búinn að brenna orginal slönguna og fá þér 8mm slöngu og troða henni uppá endann. Rúma mínútu með 1 dekk úr 0psi í 15psi, 38"
Re: loftdælur?
Posted: 20.jan 2015, 21:53
frá Brjotur
Fini er bara búin að sanna sig hérlendis og já hún kostar en það á oftast við um tæki sem endast og eru góð :) ég er búinn að eiga sömu Fini dæluna í 12 ár og nota hana mikið einu sinni búin að skifta um stimpil og slíf ekki þurft að skifta um kol ennþá , Nardi jaa ;( búinn að prufa sjálfur eina tveggja stimpla minni dæluna og hun bara hrundi eftir ca 2 ár og ónýt takk , og það eru alltaf að koma dælur til landsins og alltaf bera menn saman við Fini :) en sama uppskriftin dugar líka á Fini sem Haffi talar um þ.e að svera slönguna út úr dælu, betri afköst :)
Re: loftdælur?
Posted: 21.jan 2015, 11:23
frá rauðhaus
rauðhaus wrote:haffiamp wrote:fini er bara of dýr þó hún endist eitthvað.... kostar á milli 70 og 80 þúsund...
ég myndi tala við Tryggva í stýrivélaþjónustunni, hann er að selja góðar dælur með sömu afköst og fini á 25-30 kall (man ekki alveg)
þekki tvo sem hafa keypt hjá honum og þeir eru fanta kátir með þær, báðir á 38"
http://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R4 ... 3&_sacat=0Verslaði mér svona dælu á ebay. Komin til mín á rétt undir 28.þúsund og hún er mikið sneggri að dæla en þessar 2 stimpla dælur sem maður fær í bílanaust og stillingu. Átti eina svoleiðis og var mjög sáttur þegar ég var búin að bora hana út og smyrja.
En seglarnir inni í húsinu þoldu ekki víbringin eftir að ég boltaði hana á pallinn, þó að gúmí væri undir, og þeir brotnuðu í marga parta. Tek á mig þá sök 100%. Ef maður hugsar vel um þá dælu eru þær býsna góðar en ef maður vill vandaða vöru þá er t-max eins og þær sem maður fær annað hvort í bílabúð benna eða hjá stýrivélaþj. eða ebay þrusu græja. Mín var 1:40 mín að dæla úr 3 upp í 15 psi í 38" þar sem hin var orginal 3:15 og eftir skveringu 2:20. En þessar mælingar eru að sjálfsögðu eftir að búið er að henda þessum gormaslöngum og 6mm slanga kominn í staðinn. Veit að t-max kostaði síðasta sumar um 36.þúsund hjá bílabúð benna og ég held án þess að hafa kynnt mér það að þetta verð sem gefið er upp á netsíðu stýrivélaþj. hljóti að vera gamallt.
http://www.styri.is/vorur/spil/ Ég mæli með þessum dælum:) Og já hún hitnaði nánast ekki neitt við að dæla í 4 dekk.
Smá uppdate. Talaði við þá hjá styrivélaþj. og fékk þær upplýsingar að verðið væri rétt eða 29800 kr. Nákvæmlega sama dæla og t-max en framleitt undir öðru vörumerki þannig að þetta eru sennilega góð kaup.
Re: loftdælur?
Posted: 21.jan 2015, 23:54
frá ormara
Keypti reimdrifna York dælu (gamaldags AC dæla með olíu í sveifarhúsi) notaða af ebay, hingað komin á 15. þúsund. Lét renna kúpplingshjólið á henni fyrir flatreim sem kostaði um 15. þúsund. Smíðaði brakket fyrir dæluna og leiðarahjól ásamt að setja styttri reim og sett h/m við vél án þess að hreyfa við rafgeymi.(4.0 jeep xj) Þessi dæla fyllir 38" dekk út 2 pundum í 30 pund á rétt rúmri mínútu á ca.2500 snúningum. (Er með alvöru loftslöngu og hraðtengi/loka á felgum.)
Mæli eindregið með svona dælu, þó meiri vinna sé að koma henni fyrir.
Re: loftdælur?
Posted: 22.jan 2015, 00:06
frá Hagalín
Þekkið þið það hvort York dælan megi vera á hvolfi?
Re: loftdælur?
Posted: 22.jan 2015, 08:29
frá jongud
Hagalín wrote:Þekkið þið það hvort York dælan megi vera á hvolfi?
Einhverra hluta vegna efast ég um að það sé hollt fyrir dælurnar. Olían myndi liggja á stimplunum og safnast saman ofan í stimpilkollunum. Það yrði svakalega góð smurning á hringjunum og stimpilboltunum en líklega of lítil á sveifaráslegunum og stangarlegunum. (allavega strax eftir start). Og með tímanum myndi olía leka niðurfyrir stimplana og sullast út í loftkerfið
Re: loftdælur?
Posted: 22.jan 2015, 22:39
frá Hagalín
jongud wrote:Hagalín wrote:Þekkið þið það hvort York dælan megi vera á hvolfi?
Einhverra hluta vegna efast ég um að það sé hollt fyrir dælurnar. Olían myndi liggja á stimplunum og safnast saman ofan í stimpilkollunum. Það yrði svakalega góð smurning á hringjunum og stimpilboltunum en líklega of lítil á sveifaráslegunum og stangarlegunum. (allavega strax eftir start). Og með tímanum myndi olía leka niðurfyrir stimplana og sullast út í loftkerfið
Grunaði það en samt sögðu þeir sem selja þær, Ljónin og Icecool að það væri í lagi.