loftdælur?


Höfundur þráðar
hannibal lekter
Innlegg: 126
Skráður: 05.okt 2012, 22:18
Fullt nafn: Hannibal Páll Jónsson
Bíltegund: hilux,BMW
Staðsetning: sauðanes viti

loftdælur?

Postfrá hannibal lekter » 19.jan 2015, 18:33

hverju mæla menn með er að leita að dælu til að setja í gamla hilux sem er á 38"




Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Re: loftdælur?

Postfrá Aparass » 19.jan 2015, 22:47

Fini. Þarft ekkert að leita neitt meira eftir að þú ert búinn að kaupa þér svoleiðis og ert alltaf sáttur.


haffiamp
Innlegg: 269
Skráður: 21.jan 2012, 22:15
Fullt nafn: Hafþór Ægir Þórsson
Bíltegund: Terrano II 36"

Re: loftdælur?

Postfrá haffiamp » 19.jan 2015, 22:56

fini er bara of dýr þó hún endist eitthvað.... kostar á milli 70 og 80 þúsund...

ég myndi tala við Tryggva í stýrivélaþjónustunni, hann er að selja góðar dælur með sömu afköst og fini á 25-30 kall (man ekki alveg)

þekki tvo sem hafa keypt hjá honum og þeir eru fanta kátir með þær, báðir á 38"


kjartanbj
Innlegg: 899
Skráður: 06.jún 2011, 18:30
Fullt nafn: kjartan Björnsson
Bíltegund: Ford Ranger
Staðsetning: Reykjavík

Re: loftdælur?

Postfrá kjartanbj » 19.jan 2015, 23:25

Reimdrifna dælu..
Ford Ranger 91 351w 39.5" -Seldur-
Dodge Ram 2500 5.9 Cummins -Seldur-
-Seldur- Land cruiser 80 VX 44" -Seldur-


303hjalli
Innlegg: 113
Skráður: 16.okt 2013, 19:33
Fullt nafn: Hjálmar Kristinn Hlöðversson
Bíltegund: 4x4

Re: loftdælur?

Postfrá 303hjalli » 20.jan 2015, 07:45

Á til reimdrifnar dælur 10 -12þús. Notaðar nýjar 25þús. S-5871099-8943765

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: loftdælur?

Postfrá Sævar Örn » 20.jan 2015, 08:31

Sammála, mæli með reimdrifinni dælu, yfirleitt gott að koma þeim fyrir, dælas mjög miklu, alveg hljóðlausar,

þoli ekki hávaðann í rafmagnsdælum sérstaklega þegar búið er að festa þær í bíla
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

raggos
Innlegg: 98
Skráður: 23.mar 2013, 00:26
Fullt nafn: Ragnar F. Magnússon
Bíltegund: Toyota LC90

Re: loftdælur?

Postfrá raggos » 20.jan 2015, 11:07

eru einhverjir aðilar sem eru góðir í að koma þessum reimdrifnu fyrir í vélum? Ég mikla það svolítið fyrir mér að vera að búa til festingar fyrir dæluna og álíka.

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: loftdælur?

Postfrá jongud » 20.jan 2015, 12:19

raggos wrote:eru einhverjir aðilar sem eru góðir í að koma þessum reimdrifnu fyrir í vélum? Ég mikla það svolítið fyrir mér að vera að búa til festingar fyrir dæluna og álíka.


Það er lang auðveldast að nota "original" festingar fyrir A/C dælu og breyta einni svoleiðis í loftdælu. Þá er líka minna vesen með að finna réttu reimina.

User avatar

Hagalín
Innlegg: 760
Skráður: 01.feb 2010, 07:44
Fullt nafn: Kristján Hagalín Guðjónsson
Staðsetning: Akranes
Hafa samband:

Re: loftdælur?

Postfrá Hagalín » 20.jan 2015, 13:34

Nardi dælurnar sem fást í Verkfærasölunni og Landvélum hafa komið mjög vel út einnig.
Kristján Hagalín
Ford F-250 Lariat 46"
Nissan Patrol 201 44" - Seldur
Nissan Terrano2 2001 36" - Seldur
Toyota Hilux 2,4Turbo 38" - Seldur

E-1870


rauðhaus
Innlegg: 56
Skráður: 11.des 2010, 12:11
Fullt nafn: Jóhann Fannar Gunnlaugsson

Re: loftdælur?

Postfrá rauðhaus » 20.jan 2015, 19:02

haffiamp wrote:fini er bara of dýr þó hún endist eitthvað.... kostar á milli 70 og 80 þúsund...

ég myndi tala við Tryggva í stýrivélaþjónustunni, hann er að selja góðar dælur með sömu afköst og fini á 25-30 kall (man ekki alveg)

þekki tvo sem hafa keypt hjá honum og þeir eru fanta kátir með þær, báðir á 38"


http://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R4 ... 3&_sacat=0
Verslaði mér svona dælu á ebay. Komin til mín á rétt undir 28.þúsund og hún er mikið sneggri að dæla en þessar 2 stimpla dælur sem maður fær í bílanaust og stillingu. Átti eina svoleiðis og var mjög sáttur þegar ég var búin að bora hana út og smyrja.
En seglarnir inni í húsinu þoldu ekki víbringin eftir að ég boltaði hana á pallinn, þó að gúmí væri undir, og þeir brotnuðu í marga parta. Tek á mig þá sök 100%. Ef maður hugsar vel um þá dælu eru þær býsna góðar en ef maður vill vandaða vöru þá er t-max eins og þær sem maður fær annað hvort í bílabúð benna eða hjá stýrivélaþj. eða ebay þrusu græja. Mín var 1:40 mín að dæla úr 3 upp í 15 psi í 38" þar sem hin var orginal 3:15 og eftir skveringu 2:20. En þessar mælingar eru að sjálfsögðu eftir að búið er að henda þessum gormaslöngum og 6mm slanga kominn í staðinn. Veit að t-max kostaði síðasta sumar um 36.þúsund hjá bílabúð benna og ég held án þess að hafa kynnt mér það að þetta verð sem gefið er upp á netsíðu stýrivélaþj. hljóti að vera gamallt. http://www.styri.is/vorur/spil/ Ég mæli með þessum dælum:) Og já hún hitnaði nánast ekki neitt við að dæla í 4 dekk.

User avatar

Haffi
Innlegg: 313
Skráður: 31.jan 2010, 23:01
Fullt nafn: Hafsteinn Ingi Gunnarsson
Bíltegund: Toyhatsu Rocky

Re: loftdælur?

Postfrá Haffi » 20.jan 2015, 19:59

Mæli með dælunni í stýrivélaþjónustunni, rosa góð afköst um leið og þú ert búinn að brenna orginal slönguna og fá þér 8mm slöngu og troða henni uppá endann. Rúma mínútu með 1 dekk úr 0psi í 15psi, 38"
Toyhatsu Rocky 38" - Kvekindið
Volvo 240, 740, S70 ofl


Brjotur
Innlegg: 369
Skráður: 31.mar 2013, 15:39
Fullt nafn: Helgi j. Helgason
Bíltegund: Patrol

Re: loftdælur?

Postfrá Brjotur » 20.jan 2015, 21:53

Fini er bara búin að sanna sig hérlendis og já hún kostar en það á oftast við um tæki sem endast og eru góð :) ég er búinn að eiga sömu Fini dæluna í 12 ár og nota hana mikið einu sinni búin að skifta um stimpil og slíf ekki þurft að skifta um kol ennþá , Nardi jaa ;( búinn að prufa sjálfur eina tveggja stimpla minni dæluna og hun bara hrundi eftir ca 2 ár og ónýt takk , og það eru alltaf að koma dælur til landsins og alltaf bera menn saman við Fini :) en sama uppskriftin dugar líka á Fini sem Haffi talar um þ.e að svera slönguna út úr dælu, betri afköst :)


rauðhaus
Innlegg: 56
Skráður: 11.des 2010, 12:11
Fullt nafn: Jóhann Fannar Gunnlaugsson

Re: loftdælur?

Postfrá rauðhaus » 21.jan 2015, 11:23

rauðhaus wrote:
haffiamp wrote:fini er bara of dýr þó hún endist eitthvað.... kostar á milli 70 og 80 þúsund...

ég myndi tala við Tryggva í stýrivélaþjónustunni, hann er að selja góðar dælur með sömu afköst og fini á 25-30 kall (man ekki alveg)

þekki tvo sem hafa keypt hjá honum og þeir eru fanta kátir með þær, báðir á 38"


http://www.ebay.com/sch/i.html?_from=R4 ... 3&_sacat=0
Verslaði mér svona dælu á ebay. Komin til mín á rétt undir 28.þúsund og hún er mikið sneggri að dæla en þessar 2 stimpla dælur sem maður fær í bílanaust og stillingu. Átti eina svoleiðis og var mjög sáttur þegar ég var búin að bora hana út og smyrja.
En seglarnir inni í húsinu þoldu ekki víbringin eftir að ég boltaði hana á pallinn, þó að gúmí væri undir, og þeir brotnuðu í marga parta. Tek á mig þá sök 100%. Ef maður hugsar vel um þá dælu eru þær býsna góðar en ef maður vill vandaða vöru þá er t-max eins og þær sem maður fær annað hvort í bílabúð benna eða hjá stýrivélaþj. eða ebay þrusu græja. Mín var 1:40 mín að dæla úr 3 upp í 15 psi í 38" þar sem hin var orginal 3:15 og eftir skveringu 2:20. En þessar mælingar eru að sjálfsögðu eftir að búið er að henda þessum gormaslöngum og 6mm slanga kominn í staðinn. Veit að t-max kostaði síðasta sumar um 36.þúsund hjá bílabúð benna og ég held án þess að hafa kynnt mér það að þetta verð sem gefið er upp á netsíðu stýrivélaþj. hljóti að vera gamallt. http://www.styri.is/vorur/spil/ Ég mæli með þessum dælum:) Og já hún hitnaði nánast ekki neitt við að dæla í 4 dekk.

Smá uppdate. Talaði við þá hjá styrivélaþj. og fékk þær upplýsingar að verðið væri rétt eða 29800 kr. Nákvæmlega sama dæla og t-max en framleitt undir öðru vörumerki þannig að þetta eru sennilega góð kaup.

User avatar

ormara
Innlegg: 15
Skráður: 09.okt 2013, 21:05
Fullt nafn: Ormar Agnarsson
Bíltegund: Jeep Cherokee 4.0 91
Staðsetning: 220 Hafnarfirði

Re: loftdælur?

Postfrá ormara » 21.jan 2015, 23:54

Keypti reimdrifna York dælu (gamaldags AC dæla með olíu í sveifarhúsi) notaða af ebay, hingað komin á 15. þúsund. Lét renna kúpplingshjólið á henni fyrir flatreim sem kostaði um 15. þúsund. Smíðaði brakket fyrir dæluna og leiðarahjól ásamt að setja styttri reim og sett h/m við vél án þess að hreyfa við rafgeymi.(4.0 jeep xj) Þessi dæla fyllir 38" dekk út 2 pundum í 30 pund á rétt rúmri mínútu á ca.2500 snúningum. (Er með alvöru loftslöngu og hraðtengi/loka á felgum.)
Mæli eindregið með svona dælu, þó meiri vinna sé að koma henni fyrir.
Jeep Cherokee 91' 38'' 4.0 ho

User avatar

Hagalín
Innlegg: 760
Skráður: 01.feb 2010, 07:44
Fullt nafn: Kristján Hagalín Guðjónsson
Staðsetning: Akranes
Hafa samband:

Re: loftdælur?

Postfrá Hagalín » 22.jan 2015, 00:06

Þekkið þið það hvort York dælan megi vera á hvolfi?
Kristján Hagalín
Ford F-250 Lariat 46"
Nissan Patrol 201 44" - Seldur
Nissan Terrano2 2001 36" - Seldur
Toyota Hilux 2,4Turbo 38" - Seldur

E-1870

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: loftdælur?

Postfrá jongud » 22.jan 2015, 08:29

Hagalín wrote:Þekkið þið það hvort York dælan megi vera á hvolfi?


Einhverra hluta vegna efast ég um að það sé hollt fyrir dælurnar. Olían myndi liggja á stimplunum og safnast saman ofan í stimpilkollunum. Það yrði svakalega góð smurning á hringjunum og stimpilboltunum en líklega of lítil á sveifaráslegunum og stangarlegunum. (allavega strax eftir start). Og með tímanum myndi olía leka niðurfyrir stimplana og sullast út í loftkerfið

User avatar

Hagalín
Innlegg: 760
Skráður: 01.feb 2010, 07:44
Fullt nafn: Kristján Hagalín Guðjónsson
Staðsetning: Akranes
Hafa samband:

Re: loftdælur?

Postfrá Hagalín » 22.jan 2015, 22:39

jongud wrote:
Hagalín wrote:Þekkið þið það hvort York dælan megi vera á hvolfi?


Einhverra hluta vegna efast ég um að það sé hollt fyrir dælurnar. Olían myndi liggja á stimplunum og safnast saman ofan í stimpilkollunum. Það yrði svakalega góð smurning á hringjunum og stimpilboltunum en líklega of lítil á sveifaráslegunum og stangarlegunum. (allavega strax eftir start). Og með tímanum myndi olía leka niðurfyrir stimplana og sullast út í loftkerfið


Grunaði það en samt sögðu þeir sem selja þær, Ljónin og Icecool að það væri í lagi.
Kristján Hagalín
Ford F-250 Lariat 46"
Nissan Patrol 201 44" - Seldur
Nissan Terrano2 2001 36" - Seldur
Toyota Hilux 2,4Turbo 38" - Seldur

E-1870


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 53 gestir