Síða 1 af 1
Sangyong Rexton 2.7 diesel?
Posted: 06.jan 2015, 23:06
frá andrib85
Sælir. Ég hef verið sð skoða Rexton jeppa og þeir eru á góðu verði miðað við stærð, árg og akstur. En ég hef voða lítið heyrt hvernig þessir bílar hafa staðið sig. Er einhver hérna á spjallinu srm hefur reynslu af slíkum bíl?
Re: Sangyong Rexton 2.7 diesel?
Posted: 07.jan 2015, 05:06
frá magnum62
Ég held að það sé búið að breyta tveimur fyrir 38 " og var það, allavega á bílnum hans Gunnars Sigurfinnssonar ( Gunna stimpils), mikið mál vegna skynjara og tölvumál. En þegar það tókst þá er þetta fbara flottasti bíll og virkar vel. Prófaðu að finna hann á Facebook eða gáðu hvort hann svaraar þér hér. og þá færðu allar nánari upplýsingar.
KV MG magnum
Re: Sangyong Rexton 2.7 diesel?
Posted: 07.jan 2015, 11:18
frá andrib85
Ég er að hugsa þetta sem óbreyttan fjölskildubíl. Ekki fjallajeppa
Re: Sangyong Rexton 2.7 diesel?
Posted: 08.jan 2015, 23:23
frá haffiamp
vinnufélagi minn átti einn og var hann mjög ánægður með hann, hann var með hann á 35"...
man reyndar eftir því að hann var ekki sáttur þegar hann þurfti að skipta um spindilkúlu öðrumegin að þá þurfti hann að kaupa heila spyrnu minnir mig... en það kostaði 60 þúsund
Re: Sangyong Rexton 2.7 diesel?
Posted: 09.jan 2015, 00:20
frá thor_man
Hef séð í umræðuþráðum að stýrismaskínur í þessum nýrri Rexton og Kyron jeppum frá Sangyong fari fljótt að leka og verði að skipta um þær. Varðandi spindilkúluskipti þá er sama staða með t.d. Grand Vitara, þar verður að kaupa alla spyrnuna við spindilkúluslit.
Re: Sangyong Rexton 2.7 diesel?
Posted: 09.jan 2015, 02:07
frá magnum62
Lekar og óþéttar stýrismaskínur.
Bara til upplýsinga, þá er maður að nafni Karl Sighvatsson sem er vélvirki og þéttir lekar stýrismaskínur úr Musso, Rexton, Kia ofl. og er líka í því að yfirfara rafmagnsverkfæri.
Kv.MG